„Ég er ein, hvað hef ég við það að gera, þarf bara eina máltíð!“ segir í innleggi á Facebook síðunni Matartips. Þar hefur nokkuð lífleg umræða hefur skapast um kostnað við heimsendan mat í gegnum síðu aha.is þar sem í flestum tilfellum er krafist þess að pantað sé fyrir tvo að lágmarki.
Kona nokkur segist hafa ætlað að panta sér máltið frá BK kjúklingi á 2.900 krónur og greiða 1.495 krónur í sendingakostnað. Það hafi aftur á móti ekki verið hægt þar sem lágmarkspöntun hafi verið fyrir 3.400 krónur. Þrátt fyrir tilraunir segir konan útlit fyrir að hún sitji uppi með að panta sér mat á Dominos.
„Hætti við. Svo sný ég mér að Nings og ætla panta, nei! Þarft að panta fyrir 2 ! Í alvöru, ég borga heimsendingagjald, þá ætti ég að ráða hvað ég panta. Af hverju er gert ráð fyrir því að allir séu fleiri en einn á heimili. Vildi bara leyfa mér smá spes í kvöld. Fyrigefið tuðið enn ég er pínu svekkt og hundleið á Dominos.”
Agnar býr í Hollandi og finnst kostnaður við heimsendingu á Íslandi vera algjört rán. „Uber eats hér í Hollandi tekur 30% þóknun frá veitingastöðunum þannig að heimsendingarkostnaðurinn afmarkast við 2-3 evrur. 1500 kall fyrir heimsendingu hljómar eins og rán.“
Helgi tekur undir með Agnari. „Það er greinilegt að það vantar heimsendingar þjónustu á Íslandi í anda JustEat, Uber Eat, Deliveroo og fl. Sanngjarnt gjald per sendingu, skiptir þá engu máli hvort pantað sé fyrir einn eða 10.“
Aðrir stinga upp á heimsendingaþjónustunni Nágrannar sem sendi heim fyrir 790 krónur.
Einhverjir benda á að panta stærri skammtur og geyma til síðari tíma neyslu en ekki er allir sammála um að það sé lausn.
„Það er ekkert tillit tekið til þerra sem búa einir, bara kjarnafjölskyldunnar, svo annaðhvort verður maður að sætta sig við að hafa sama hlutinn oft á dag í afganga, eða að henda honum (fullkomlega góðu kjöti) bara af því að manni langar ekki til að éta sama hlutinn aftur og aftur til þess eins að hann fari ekki til spillis,“ skrifar Bergþór.
Maron Kristófersson svarar fyrir hönd aha.is og segir fyrirtækið hafa afhent hundruð þúsunda sendinga. „Við erum stanslaust að vinna í því að bæta gæðin, lækka kostnaðinn, en á sama tíma standa skil á þeim launum og sköttum sem okkur ber á Íslandi, en við erum ekki með fólk á verktakalaunum per sendingu sem þarf að treysta á þjórfé eins og er víða erlendis.
Hann segir fyrirtækið þetta erlendu módelin vel en sumt sé gert á annan veg hérlendis vegna íslenskra aðstæðna og ólíks markaðar. „Get lofað því að það er verið að vinna í lausn á smærri sendingum með allra hag í huga – Kaupanda, seljanda og sendils.”

