Útvarpsstjarnan Heiðar Austmann og kona hans, Kolfinna Guðlaugsdóttir, hafa sett smekklega íbúð sína við Tröllakór í Kópavogi á sölu.

Kemur fram að íbúðin er skráð 140 fermetrar að stærð; á fjórðu hæð í fallegu fjölbýlishúsi sem var byggt fyrir 15 árum síðan.

Heiðar er ein okkar allra skærasta útvarpsstjarna, vinnur á K100, og Kolfinna er bókari og naglafræðingur.

Í íbúðinni er björt stofa og rúmgóð með stórum gluggum; en þaðan er útgengt á suðursvalir með nettu útsýni yfir hverfið.

Frá stofunni er gengið inn í samliggjandi eldhús og borðstofu í gegnum bogadregið op.

Eldhúsið er síðan flísalagt með viðarinnréttingu; nóg er af skápaplássi.
Þá er borðstofan björt og rúmgóð.

Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni; eitt rúmgott hjónaherbergi með góðu skápaplássi og tvö barnaherbergi.
Flott eign sem verðsett er á 85 milljónir króna.

