Miðvikudagur 11. mars, 2026
0.8 C
Reykjavik

Eiginkona Alfreðs lést eftir baráttu við heilaæxli: „Hvað þetta gerðist hratt var alveg hræðilegt“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Besti handknattleiksþjálfari Íslands og mögulega bara allra tíma, Alfreð Gíslason, hefur gengið í gegnum mjög erfiða tíma að undanförnu.

Alfreð ætlaði að hætta sem þjálfari þýska karlalandsliðsins í handbolta, þegar hann og eiginkona hans, Kara Guðrún Melsteð, fengu þær hræðilegu fréttir að Kara væri með krabbamein í byrjun maí, en hún taldi honum hughvarf. Því miður lést Kara stuttu síðar og nú hefur Alfreð tjáð sig í fyrsta sinn um fráfall eiginkonu sinnar í viðtali við þýska blaðið/vefmiðillinn Bild.

Alfreð segir að síðustu mánuðir hafi verið svakalega erfiðir og hann hafi verið nálægt því að hætta sem landsliðsþjálfari:

„Hvað þetta gerðist hratt var alveg hræðilegt,“ sagði Alfreð og bætti við:

„Það var þriðja maí, eftir leikinn gegn Eistlandi, sem við fórum til læknisins. Og þá kom greiningin í ljós sem breytti öllu. Krabbamein var komið aftur; þetta var heilaæxli, mjög sjaldgæft og illkynja.“

Alfreð ákvað eftir þetta að hætta sem landsliðsþjálfari Þýskalands; Kara vildi það hins vegar ekki og hvatti Alfreð til að halda áfram:

- Auglýsing -

„Fyrstu viðbrögðin voru að hætta; að við myndum fara til Íslands og eyða síðustu mánuðunum þar. En hún sagði nei. Það var eins og hana hafi grunað að hún myndi kveðja fljótlega. Ég hélt við ættum allavega sex mánuði eftir saman,“ segir Alfreð sem var „mjög þakklátur þýska handknattleikssambandinu fyrir að gefa mér frið í maí. Kara var reið við mig þegar ég sagðist ætla að hætta því hún vissi hversu mikilvægur handboltinn er fyrir mig,“ en Alfreð og Kara höfðu verið saman frá því voru sextán ára gömul og síðustu mánuðir hafa verið Alfreð afar erfiðir.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -