Eftir tapið gegn Rúmenum í gærkvöld á Laugardalsvelli kom Eiður Smári Guðjohnsen aðstoðarlandsliðsþjálfari karlalandsliðið í knattspyrnu í viðtal við fotbolti.net. Og var spurður af hverju Rúnar Alex Rúnarsson hafi byrjar í markinu, en ekki sá gamalreyndi Hannes Þór Halldórsson og hvernig Hannes hafi tekið tíðindunum, hvort hann hafi verið sár:

„Að sjálfsögðu. Það hefði verið skrýtið ef hann hefði ekki verið það,“ sagði Eiður Smári og bætti við:
„Það sýnir að hann er enn með fullan huga og metnað við þetta. Hann má líta á sjálfan sig sem besta markvörð í heimi. Ég hef lent í því sem leikmaður að þjálfarar taka sínar ákvarðanir. Þú mátt vera sár og reiður, en þegar komið er inn á völlinn þarf hann að sýna sinn þroska og reynslu við að styðja við bakið á þeim sem eru að spila því þeir eru margir að stíga sín fyrstu skref.“

