Eiði Smára Guðjohnsen, var í gærkvöld sagt upp störfum aðstoðarlandsliðsþjálfara íslenska landsliðsins í knattspyrnu. Samkvæmt heimildum RÚV og Fotbolti.net er ástæðan sú að Eiður Smári hafi fengið sér í glas í gleðskap KSI eftir leik Íslands og Norður Makedóníu fyrr í mánuðinum.
Er þetta í annað skiptið á einu ári sem landsliðsþjálfari í knattspyrnu þarf að hætta eftir gleðskap KSI en Jón Þór Hauksson, fyrrum þjálfari kvennalandsliðs Íslands, varð að hætta eftir að hafa gengið of langt í gleðskap sem KSI stofnapði til með kvennalandsliðinu.
Eiður Smári var búinn að fá gula spjaldið hjá KSI eftir að myndband af honum í annarlegu ástandi í miðborg Reykjavíkur, fór í dreifingu. Mannlíf sagi frá fyrst fjölmiðla. Í kjölfarið birti Eiður tilkynningu þar sem hann sagðist ætla að taka á sínum málum.
Samkvæmt DV var gleðskapurinn haldinn af KSI þar sem leikmönnum, þjálfurum og starfsmönnum KSI var boðið upp á áfenga drykki. Ekki telur DV að Eiður Smári hafi farið yfir einhver mörk í gleðskapnum en af einhverri ástæðu sá Vanda Sigurðardóttir, formaður KSI, til þess að segja honum upp.
Þá segir DV einnig frá því að leikmaður landsliðsins sé undir smásjá KSI eftir að hafa farið vel yfir strikið í drykkju í téðum gleðskap og að hann hafi verið enn í annarlegu ástandi þegar flogið var heim á mánudagsmorgun.

