Guðrún Margot Ólafsdóttir, fyrrverandi dósent í landafræði, er látin níræð að aldri. Hún fékk hægt andlát síðastliðinn sunnudag. Hún er móðir fjölmiðlamannsins geðþekka Egils Helgasonar en hann minnist hennar á Facebook-síðu sinni. Hann deilir frétt Morgunblaðsins um andlát hennar og skrifar:
„Svona segir Morgunblaðið frá andláti mömmu. Myndin var tekin þegar hún hætti störfum í gamla Kennaraskólanum og var kvödd með virktum af nemendum. Þá fór hún í Háskóla Íslands og starfaði þar í áratugi. Hún var mjög vinsæll kennari og mér þykir alltaf vænt um þegar gamlir nemendur minnast hennar. Það má sjá á myndinni að þetta hefur verið skemmtileg stund.“
Guðrún var kennari við Kennaraskóla Íslands þar til hún hóf störf við Háskóla Íslands á áttunda áratugnum. Hún var frumkvöðull í að byggja upp nám í landafræði á Íslandi. Hún var virk í starfi Kvennaframboðsins í Reykjavík. Börn hennar eru Egil og Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs.

