Föstudagur 16. október, 2026
8.8 C
Reykjavik

„Ég var vissulega drukkinn og graður og fékk móral yfir þessu“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Tuttugu og þriggja ára gamli ég sagði stelpu að fokka sér af því hún neitaði mér um heimboð niðri í bæ. Ég var rétt búinn að segja hæ áður en ég spurði hvort hún vildi sofa hjá mér,” skrifar þrítugur maður á Instagram síðuna Fávitar sem Sólborg Guðbrandsdóttir hefur rekið til að vekja athygli á kynferðisofbeldi. Sólborg hefur einnig gefið út bók með sama nafni sem vakið hefur mikla athygli.

Fjöldi íslenskra stúlkna og kvenna, allt niður í 12 ára aldur, hafa tjáð sig um kynferðislegt áreiti og ofbeldi á síðunni. Mikil fjöldi kvenna hefur sagt reynslu sína af kynferðisofbeldi en einnig hafa karlmenn opnaði sig á síðunni og hafa tjáð sig um kynferðisofbeldi, jafnt sem þolendur og gerendur. Margir segja sögurnar hafi vakið sig til umhugsunar og heldur maðurinn áfram frásögn sinni.

„Þetta gerði ég tvisvar í gamla daga. Ég var vissulega drukkinn og graður. En það skiptir engu máli. Ég fékk móral yfir þessu daginn eftir en hann var ekki mikill“.

Hann segir að það hafi ekki verið fyrr en mörgum árum síðar þegar hann var spurður „af hverju léstu svona við þessar stelpur” sem hann áttaði sig á að því að hann lét svona af því að honum fannst hann hafa rétt á að sofa hjá stelpum.

„Og ef þær vildu það ekki, voru þær bara með leiðindi. Í þessu karllæga samfélagi var ég ekki maður með mönnum nema ég svæfi hjá stelpum. Og hefði lítið fyrir því.

Ég hef líka slut-shameað stelpur. Og ég hef tekð undir victim blaming. Og ég fattaði það ekki einu sinni hvað það var andstyggilegt og misjafnt. Af því samfélagið er svo sjúkt.

- Auglýsing -

Svo las ég mig til. Lærði og hlustaði. Og í dag séð ég það svo vel hvað samfélagið í dag þarf að breytast. Og hvað kvenfyrirlitning er normal hlutur í samfélaginu. Og hvað nauðgunarmenningin er mikil. Maður þarf ekki annað en að skrolla niður þessa síðu (Fávitar) í 10 mínútur til að sjá það.

Anyway….Ég hef gert margt sem ég sé eftir án þess að hafa pælt í því fyr en löngu seinna. Einfaldlega af því er karlmaður. Ekki af því að ég var illa upp alinn….ég átti ekki sexist foreldra. Þetta er bara af því þetta er alsstaðar og stanslaust.

Þetta helvítis feðraveldi.“

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -