Besti knattspyrnumaður okkar Íslendinga, Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Everton, mun ekki spila í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á þessu tímabili fyrr en í allra fyrsta lagi í janúar.
Gylfi var ekki á meðal þeirra 24 leikmanna sem Everton skráði til keppni í deildinni í vetur, sem hófst í ágúst síðastliðnum.
Fari allt vel fyrir Gylfa, en eins og alþjóð veit var hann handtekinn grunaður um brot gegn ólögráða stúlku, gæti hann spilað í upphafi næsta árs; en hægt er að gera breytingar á hópnum í janúar þegar félagaskiptaglugginn verður opnaður aftur.
Eina sem er öruggt í máli Gylfa Þórs, en afar erfiðlega hefur gengið að fá upplýsingar af framvindu málsins, er að hann á að mæta fyrir dómara þann 16. október næstkomandi, en Gylfi Þór er þó laus gegn tryggingu en má ekki yfirgefa England.

