Miðvikudagur 18. febrúar, 2026
-3.2 C
Reykjavik

„Ef ég væri Ingó“ – Björn hvetur Veðurguðinn að „hætta að kæra fólk og krefjast bóta“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Hinn margreyndi blaðamaður og upplýsingafulltrúi Björn Þorláksson tjáir sig um mál Ingó Veðurguðs og setur sjálfan sig í spor tónlistarmannsins; segir frá því hvað hann myndi gera ef hann „væri Ingó.“

Björn hvetur Ingó til að hætta að feta þá braut sem hann er á í dag með lögfræðingnum Vilhjálmi Vilhjálmssyni, sem sent hefur sex kröfubréf út til fólks sem tjáð sig hefur opinberlega um Ingó á netinu.

Orð Bjarnar má túlka sem ákveðið leiðarstef sem hann mælir með að Ingó hafi að leiðarljósi í lífi sínum; hætta að kæra fólk og skoða sinn innri mann og bregðast öðruvísi við því sem blasir við honum; snúa af þeirri braut sem Björn telur Ingó vera á og takast á við raunveruleikann með öðrum hætti en að snúast til varnar með lögfræðing sér við hlið og sýna iðrun ef sekur og ef saklaus þá á eigi Ingó að „leyfa eigin þjóð að horfa í augun á sér.“

„Ef ég væri Ingó guð myndi ég hætta að senda bréf; hætta að krefjast bóta og reyna fremur að skilja að það verður lítið að gera í spilamennsku á næstunni, reyna að skilja að fæstir þolendur gera það að gamni sínu að opinbera sig með þeim hætti sem raun ber vitni,“ segir Björn og bætir því við að ef Ingó sé saklaus „á hann að stíga fram í fjölmiðlum og leyfa eigin þjóð að horfa í augun á sér. Reyna að endurnýja trúverðugleikann. Ef sekur, byrja þá nýtt upphaf á iðrun og innri endurskoðun en ekki kröfum um fébætur.“

Hrafn Arnarson tekur heilshugar undir orð Bjarnar og hefur þetta fram að færa:

- Auglýsing -

„Hann hlýtur að skilja að hann mun tapa þessum slag. Mjög illilega. Núna á hann að hætta við öll málaferli og hugsa sinn gang. Hann getur orðið hluti að lausn og breytingum.“

Arndís Bergsdóttir er á sama máli og þeir Björn og Hrafn og grípur til orða ásamt því að nota „myndmál“ til að auka mátt orða sinna og undirstrika þau með hressilegum hætti. Gerir það vel:

- Auglýsing -

„Mér finnst Hugleikur Dagsson negla þetta“ segir Arndís og birtir mynd eftir Hugleik Dagsson sem aldrei hefur hikað við að gagnrýna með sterkum myndum sínum og stuttum texta þau mál sem brenna á honum.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -