Laugardagur 17. október, 2026
9.8 C
Reykjavik

Edda varð fyrir hrottalegri líkamsárás og nauðgun: „Núna get ég ekki farið ein út með ruslið“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Það var í útskriftaferð sinni til Krítar sem hin þá 18 ára gamla Edda Kristín Bergþórsdóttir varð fyrir hrottalegri og skyndilegri árás.

Ferðin rataði í fréttirnar vegna hennar og Mannlíf greind frá því þegar Edda Kristín flaug til Krítar til að bera vitni gegn mönnunum sem brutu gegn henni.

Edda Kristín sem nú er 21 árs, sagði frá þessari hræðilegu lífsreynslu sinni í Ísland í dag.

Edda lýsir því að ferðin hafi byrjað vel, allir dagar svipaðir; sofið út, byrjað snemma að fá sér áfengi og farið út að skemmta sér á kvöldin. Líkt og flestir kannast við sem farið hafa í slíka ferð. En það var á áttunda degi sem allt breyttist til hins verra.

„Vinkonan mín ætlaði að fara á hótelið aftur og ég svona, æji ég nenni ekki alveg að fara á hótelið strax. Ég vissi að vinur minn væri nýfarinn á McDonalds sem var svona tvær mínútur í burtu. Ég ætlaði bara að hitta hann þar og ég ætlaði bara að rölta í rólegheitunum. Ég hélt að ekkert myndi gerast á tveggja mínútna rölti. Áður en ég veit af eru tveir menn standandi fyrir aftan mig og grípa í mig og labba bara með mig eitthvert. Ég varð alveg máttlaus og mér leið eins og þeir væru að labba með mig í einhvern hálftíma en þetta voru örugglega fimm mínútur,“ segir Edda. En hræðslan sem greip hana var svo mikil að hún fraus og kom ekki upp orði.

„Síðan skiptust þeir á að halda mér niðri á meðan hinn nauðgaði mér. Ég veit ekki hversu langan tíma þetta tók, ekki langt, þó að þetta hafi liðið eins og þetta hafi verið margir tímar. Annar þeirra segir, thank you for your time, og þeir skilja eftir peningaseðil og klink inni í mér. Síðan bara fara þeir.“

- Auglýsing -

Edda var skelfingu lostin og þorði ekki að hreyfa sig.

„Ég bara ligg á jörðinni í örugglega tíu mínútur korter. Síðan ætla ég að labba af stað og finna hótelið til þess að geta fengið að fara til læknis eða eitthvað en ég rata ekkert og vissi ekkert hvar ég var. Síminn var dauður og ég fattaði ekki einu sinni að fara inn á einhvern stað til að hringja. Ég labbaði ábyggilega í tuttugu mínútur til þess að reyna finna hótelið. Svo fann ég bara eitthvað hótel og fór þangað. Ég bað þau um að hringja á leigubíl og bið leigubílstjórann um að fara með mig á sjúkrahús. Hann skutlar mér á pínulitla heilsugæslu sem var opin allan sólarhringinn. Þar hringja þeir á hótelið og ferðaskrifstofuna.“

Fulltrúar ferðaskrifstofunnar og vinir Eddu sem höfðu verið farnir að óttast um hana komu þá til hennar. Henni var ekið með sjúkrabíl á sjúkrahús til aðhlynningar og skoðunar. Því næst fór hún á lögreglustöð, gaf skýrslu og kærði. Það þótti þó ekki líklegt að mennirnir myndu finnast.

„Þarna var kominn dagur og ég var ekki búin að sofa neitt, ekki búin að fara í sturtu og ekki búin að borða. Ég var bara alveg ónýt og löggan að spyrja mig endalaust. Þeir voru bara að reyna fá eins miklar upplýsingar og hægt var og ég reyndi að gefa þeim allt sem ég gat.“

- Auglýsing -

Ólíklegt að gerendurnir myndu finnast

Eftir skýrslutökuna fór Edda upp á hótel að hvíla sig, en síðar sama dag koma tveir lögregluþjónar þangað og vilja fá hana með sér aftur á lögreglustöðina.
Þá höfðu tveir menn sem þóttu grunsamlegir á skemmtistaðnum kvöldið áður verið handteknir.
Reyndust þetta vera mennirnir sem brutu á Eddu.

„Sama ár, í nóvember þurfti ég að fara aftur út og bera vitni aftur og gefa skýrslu. Ég gat ekki gert það hérna heima út af því að þetta er svo gamaldags kerfi í Grikklandi. Ég fór sem sagt með tveimur konum frá ferðaskrifstofunni Tripical aftur út og ég er mjög þakklát þeim fyrir að hafa verið til staðar.“

Edda þurfti að fara út í þriðja sinn, í desember í fyrra.

„Þar þurfti ég að bera vitni fyrir dómi og þeir sátu einum metra frá mér. Það var hræðilegt. Ég sat í salnum þegar þeir löbbuðu inn og ég fór strax í sjokk þegar þeir komu inn.“

Annar maðurinn fékk fjögurra og hálfs árs dóm og hinn fjögurra ára dóm. Saksóknarinn var ekki sáttur við niðurstöðuna og krafðist harðari refsingar og er málið því ólokið.

„Mér fannst þetta ekki nægilega harður dómur.“

Nauðsynlegt að leita sér aðstoðar

Edda Kristín hefur leitað til Stígamóta og er hjá sálfræðingi til að vinna úr áfallinu.
Segir hún að ef þetta hefði gerst á Íslandi myndi hún líklegast ekki þora út úr húsi af hræðslu við að rekast á gerendurna.

„Ég er með áfallastreituröskun, mikinn kvíða, ég sef mjög illa og hef ekki sofið heila nótt síðan að þetta gerðist,“ segir Edda sem fær martraðir um hverja nótt.

„Ég get ekki gengið um ein, eitthvað sem ég gerði og hafði gaman af. Núna get ég ekki farið ein út með ruslið nánast.“

Edda vill stuðla að því að fólk sem lendi í svona áfalli leiti sér aðstoðar.

„Ég held að það hafi alveg hjálpað að fara strax til lögreglu og bíða ekki. Ég held að ef ég hefði beðið þá væri ég örugglega ekki að tala um þetta við neinn.“

Edda segist reið gerendum sínum og skilur ekki hvernig manneskja getur gert annari manneskju svona lagað. Segist hún oft hugsa um árásina sem hún varð fyrir og stundum fari hún í það að kenna sjálfri sér um.

„Ég hugsa hluti eins og ég hefði átt að berjast á móti, öskra og allt til þess að komast undan þessu. En þeir voru tveir, ég var ein. Þeir voru líklegast edrú og ég hefði sennilega ekki komist undan og þetta hefði geta farið verr. Í grunninn veit ég að þetta er ekki mér að kenna.“

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -