Dóra Jóhannsdóttir, leikkona og leikstjóri, fagnar í dag einu ári edrú. Hún segist ótrúlega þakklát öllu því fólki sem hjálpaði henni að ná þeim áfanga. Hún segist tárast þegar hún horfir á ljósmynd af sér fyrir akkúrat ári síðan.
„Að hætta að drekka var ákvörðun sem ég tók fyrir tæpum 3 árum, enda neyslan farin að hafa mikil neikvæð áhrif á líf mitt. En það reyndist þrautinni þyngra að ná því. Botninn varð alltaf dýpri og dýpri og fyrir ári síðan var ég búin að missa alla stjórn, líf mitt var komið í algjöra rúst og örvæntingin var rosaleg,” segir Dóra á Facebook.
Hún segist aldrei hafa getað gert þetta ein. „Ég þurfti mikla hjálp, sem ég blessunarlega fékk, og ég er óendanlega þakklát öllu fólkinu sem hefur hjálpað mér og staðið við bakið á mér í þessu bataferli. Ég hefði aldrei getað þetta ein. Ég tárast og fæ hroll þegar ég horfi á ljósmynd af mér fyrir akkúrat ári síðan,” segir Dóra.
Nú hafi hún fundið friðinn. „En ég kíki reglulega á þessa mynd til að minna mig á hvaðan ég er að koma. Ég hef breyst mikið og þroskast og líf mitt í dag er ótrúlega fallegt og gott og sífellt að koma mér á óvart. Ég hef fundið fyrir hamingju og frið sem ég vissi ekki að væri til! Ég er stútfull af þakklæti og vil koma því fram að ég er til staðar fyrir hvern þann sem vill hjálp við að verða edrú.”

