Þriðjudagur 10. mars, 2026
3.6 C
Reykjavik

Dómur fallinn í SSF málinu:„Ég lít á þennan dóm sem staðfestingu á því að stéttarfélagið sveik mig“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Dómur er fallinn í máli Hilmars Vilbergs Gylfasonar, fyrrum fjármálastjóra Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja, gegn samtökunum. Sakaði Hilmar framkvæmdarstjóra SSF meðal annars um ofbeldi og einelti gegn sér en Hilmari var sagt upp starfi er hann var í veikindaleyfi.

Hilmar vann 2 liði af 5 í stefnu sinni fyrir héraðsdómi Reykjavíkur. Var Friðberti Traustasyni, framkvæmdarstjóra SSF gert að greiða Hilmari 1.023.350 krónur með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 31/2001 um vexti og verðtryggingu frá 10. desember 2020 til greiðsludags. Hilmar hafði krafist tæplega 75 milljóna króna.

Sjá einnig: Hilmar lýsir einelti á skrifstofunni: „Ég lamaðist úr skelfingu og kom varla upp nokkru orði“

Var dómurinn Hilmari í vil er snéri að vangreiddri yfirvinnu og orlof en taldi upphæðirnar sem Hilmar krafðist ekki vera í samræmi við það sem hann átti inni. Dómurinn hafnaði kröfu Hilmars um að SSF yrði gert að greiða að öllu leyti fyrir lögfræðiaðstoð sem Hilmar þáði er hann tilkynnti ofbeldi og einelti gegn sér í félaginu en þó hluta af greiðslunni. Þá hafnaði dómurinn einnig þeim lið er snéri að skaða og miskabótum, með öllu.

Dómsorðin hljómuðu svohljóðandi:

„Stefndi, B, greiði stefnanda, A, 1.023.350 krónur með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr.
6. gr. laga nr. 31/2001 um vexti og verðtryggingu frá 10. desember 2020 til greiðsludags.
Kröfum um 9% séreignarlífeyrissparnað, 6,45% tryggingagjald og 0,10% gjald til endurhæfingarsjóðs af 428.150 krónum er vísað frá dómi. Málskostnaður fellur niður.
Gjafsóknarkostnaður stefnanda vegna þóknunar lögmanns hans, Höskuldar Þórs
Þórhallssonar, að fjárhæð 1.000.000 króna greiðist úr ríkissjóði.“

Mannlíf ræddi við Hilmar í kvöld en hann segist mjög ósáttur við dóminn. Varðandi þau rök sem dómarinn gaf fyrir því að hafna skaða og miskabótunum segir Hilmar: „Ég hef aðeins skoðað þennan rökstuðning hjá dómaranum og niðurstaðan hans er bara einfaldlega röng, hann vísar rangt í ákvæði reglugerða o.s.frv. Horfir einnig algjörlega framhjá vitnisburðum og gögnunum sem láu fyrir.“

- Auglýsing -

Heldur Hilmar áfram. „Síðan er það krafan mín um að uppsögnin verði dæmd ólögmæt þar sem stéttarfélagið gaf sannanlega ranga ástæðu fyrir því að mér væri sagt upp störfum. Þeir vildu meina að ,,rekstrarhæfi“ skrifstofunnar væri í hættu. Samt sem áður kemur hver á eftir öðrum fyrir dóminn og lýsir yfir hæfni minni sem starfsmanni hjá félaginu. Dómarinn fellir þessa kröfu á því að ákvæði í kjarasamningi stéttarfélagsins geri ekki kröfu um að veittur sé skriflegur rökstuðningur og því hafi hann ekkert gildi. Þetta er í beinni andstöðu við dóm Félagsdóms frá árinu 2013 og Atla Rafns, Hæstaréttardóminn í Borgarleikhúsmálinu sem kom um daginn. Þetta ákvæði er eins í örugglega flestum kjarasamningum á vegum ASÍ, t.d. hjá VR. Þannig að það er mikið undir að hnekkja þessari niðurstöðu. Og sama ef þessi niðurstaða verður staðfest á æðri dómstigum þá eru þessi ákvæði í kjarasamningum hjá fullt af stéttarfélögum algjörlega marklaus, sem hlýtur að vera áfellisdómur yfir stéttarfélögunum.“

Hilmar segist einnig hafa margar athugasemdir við störf dómarans.

„Ég hef síðan ótal athugasemdir við störf dómarans, sem lýsir sér kannski best í niðurstöðu hans um málskostnað þar sem hann heldur því fram að ég hafi lagt fram allt of mikið af gögnum o.s.frv. Samt var aldrei gerð nein athugasemd við eitt einasta gagn í málinu. Og ég á að sitja uppi með yfir 10 milljónir í málskostnað þegar niðurstaða dómsins er samt sem áður að stéttarfélagið hafi svikið mig um greiðslur. Það er skrýtin afstaða til Davíðs, þegar Davíð er að berjast við Golíat.“

- Auglýsing -

Ætlarðu að fara með þetta fyrir Landsdóm?

„Þetta hefur tekið mikið á mig og fjölskylduna og í grunninn er það þannig að ég lít á þennan dóm sem staðfestingu á því að stéttarfélagið sveik mig. Þó líklega verði Landsréttur að fá málið til sín til að fá réttláta niðurstöðu.“

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -