Diljá Helgadóttir er lögfræðingur á alþjóðlegu lögmannsstofunni Van Bael & Bellis í Brussel í Belgíu og í London á Englandi. Diljá hlaut nýverið stöðu aðjúnkts við Háskólann á Bifröst; er yngsti aðjúnktinn við lagadeild á Íslandi, aðeins 27 ára gömul.
„Það er auðvitað óvænt ánægja að vera yngst kvenna til að taka við aðjúnktstöðu við lagadeild Háskólans á Bifröst, og ég er mjög spennt fyrir því að koma að uppbyggingu lagadeildarinnar.“
Dilja segir að „það sem heillar mig við Háskólann er sveigjanleikinn fyrir nemendur þar sem námið fer að mestu fram í fjarkennslu. Það höfðar í raun til hvers sem er, hvort sem um er að ræða ungt fólk sem er að koma úr menntaskóla, afreksíþróttamenn, fólk sem langar að skipta um feril, fólk sem er með fjölskyldu, sem býr erlendis eða langar einfaldlega að bæta við sig námi með vinnu.“
Henni finnst „að lykillinn að árangri í námi sé áhugi og vellíðan og það gæti átt við um allt annað í lífinu líka. Þetta þarf allt að spila saman og ég held að foreldrar mínir hafi kennt mér að umkringja mig jákvæðu fólki. Ég er líka mjög heppin með sambýlismann, Snæbjörn Val, þar sem við erum bæði metnaðarfull og með jákvæða nálgun á lífið, hvetjum hvort annað áfram og trúum því að ekkert verkefni sé of stórt. Það skemmir ekki fyrir að Snæbjörn Valur er líka lögfræðingur en hann starfar á bandarískri lögmannsstofu á sviði fjármála og verðbréfamarkaðsréttar.“
Heimild: Smartland

