Mánudagur 9. mars, 2026
3.8 C
Reykjavik

Dauðadrukkinn sóttvarnadólgur gripinn í nótt – Kona reyndi að stela kerti

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Dauðadrukkinn sóttvarnadólgur þverskallaðist við að hlýða lögreglu og var handtekinn við Hlemm. Maðurinn átti að vera í sóttvarnahús en braut gegn því og þvældist drukkinn um borgina. Lögreglan tók hann engum silkihönskum en færði hann í fangageymslu þar sem hann dúsir nú.

Nóttin í Reykjavík var að öðru leyti róleg en eitthvað um ölvunarakstur.   Bifreið stöðvuð eftir hraðamælingu á 113 kílómetra hraða á Breiðholtsbraut. Ökuníðingurinn er grunaður um ölvun við akstur. Annar ökumaður, sem var stöðvaður, reyndist vera án réttinda og hafði aldrei tekið bílpróf.  Í bifreiðinni fannst mikið magn af áfengi og er ökumaðurinn grunaður um sölu áfengis.

Nokkurt uppistand varð í verslun um miðbik nætur. Kona sem reyndist vera með fíkniefni var staðin að því að reyna að stela kerti. Kærasti hennar var staðinn að þjófnaði. Málið var afgreitt með vettvangsskýrslum.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -