Eystri Landsréttur í Danmörku hefur komist að þeirri niðurstöðu að þeim beri að þyngja dóm yfir Markúsi Betúel Jósefssyni, sem fundinn var sekum um að hafa nauðgað dóttur sinni ítrekað frá því hún var fimm ára og þar til hún náði níu ára aldrinum.
Markús var dæmdur fyrr á árinu í fjögurra ára fangelsi fyrir glæpi sína en hann neitaði sök og ákvað að áfrýja dómnum til æðsta dómstigs. Því hefði hann betur sleppt því dómstóllinn ákvað að þyngja dóminn yfir honum í sex ára fangelsi, úr fjórum. Ákveðið var á báðum dómstigum að Markús yrði eftir afplánun víðað úr landi og gerður útlægur á danskri grund.
DV sagði frá málinu í dag.
Árið 2018 tilkynnti sveitarfélagið í Nyborg í Danmörku um málið til lögreglunnar og hófst þá rannsókn á málinu. Í ljós kom við þær rannsóknir að Markús hafði nauðgað dóttur sinni á árunum 2006 til 2010 en á þeim tíma hafði hann umgengni við dóttur sína. Átti ofbeldið bæði sér stað hér á landi og í sumarhúsi á Fjóni. Samkvæmt DV hefur dóttir Markúsar ekki séð pabba sinn síðan 2010.
Alþjóðleg handtökuskipun var gefin á hendur Markúsi árið 2020 en um sumarið hafði hann verið úrskurðaður í gæsluvarðhald að honum fjarstöddum en hann bjó þá á Spáni. Þann 17. október 2020 var hann handtekinn í Alicante á Spáni og stuttu síðar framseldur til Danmerkur.
Markús var ekki einungis dæmdur fyrir nauðganirnar heldur einnig fyrir að beita hana annars konar ofbeldi og fyrir að hafa hótað henni ofbeldi.

