Fimmtudagur 5. mars, 2026
-0.2 C
Reykjavik

Dagar Kolbeins hjá Gautaborg gætu senn verið taldir: „Viljum ítreka að við fordæmum þessa hegðun“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Sænska knattspyrnuliðið Gautaborg, sem leikur í efstu deild, er með mál Kolbeins Sigurðssonar til skoðunar.

Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Mannlífs frá Svíþjóð er nú rætt um að rifta samningi Kolbeins í kjölfar þess að upp komst um kynferðisofbeldi hans gagnvart Þórhildi Gyðu Arnarsdóttur, og að hann hafi greitt skaðabætur til hennar.

Sjá einnig: Kolbeinn Sigþórsson iðraðist og greiddi bætur eftir kynferðisofbeldi – Guðni þaggaði málið niður

Forráðamenn Gautaborg eru afar óánægðir, svo ekki sé meira sagt, með að heyra þessar fréttir af Kolbeini, en þeir vissu hins vegar um að hann hafi verið handtekinn árið 2109 á skemmtistað þegar hann var leikmaður AIK í Svíþjóð, en létu það ekki hindra sig í að semja við Kolbein.

Staðan er hins vegar gjörbreytt nú; sú staðreynd að Kolbeinn beitti kynferðisofbeldi og reyndi allt sem hann gat til að leyna því er eitthvað sem forráðamenn Gautaborg geta illa sætt sig við, og sagði heimildarmaður Mannlífs, sem er gjörkunnugur sænska knattspyrnuheiminum, að meiri líkur en minni væru á því að félagið myndi rifta samningi Kolbeins.

„Ég held að ekkert félag vilji halda og hafa hjá sér leikmann sem gerist sekur um kynferðisofbeldi og reyni síðan allt sem hann getur til að hylma yfir gjörninginn. Hvorki forráðamenn, aðrir leikmenn og stuðningsmenn félagsins geti sætt sig við það.“

- Auglýsing -

Sjá einnig: Segir tvo þjóðþekkta Íslendinga hafa nauðgað sér ítrekað: „Ég skila skömminni, FOKKIÐ YKKUR “

Gautaborg hefur sent frá sér opinbera yfirlýsingu um mál Kolbeins:

„Á mánudaginn bárust okkur fréttir um að einn af okkar leikmönnum hafi framið kynferðisbrot árið 2017. IFK Gautaborg fordæmir þessa hegðun.

- Auglýsing -

Leikmaðurinn var tilkynntur til lögreglu á sínum tíma en rannsókn leiddi ekki til kæru en leikmaðurinn greiddi miskabætur. IFK Gautaborg tekur þessu mjög alvarlega þrátt fyrir að málinu sé lokið, lagalega séð. Við erum að ræða við leikmanninn um málið og hvernig við höldum áfram. Við viljum ítreka að við fordæmum þessa hegðun.“ Undir yfirlýsinguna skrifar Hakan Mild formaður félagsins Gautaborgar.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -