Daði Freyr Pétursson segir það ansi pirrandi að geta ekki stigið á svið í Rotterdam á úrslitakvöldi Eurovision á morgun. Hann útilokar að svo verði og því verður spiluð sama upptaka og kom Íslandi í gegnum undanúrslitin í gærkvöldi.
Í viðtali eftir undanúrslitin sagði Daði það hafa verið skrítið að horfa á sig og Gagnamagnið koma fram.
„Ég heyrði eiginlega ekki í áhorfendunum að fagna, en ég fann fyrir því og fékk mörg myndbönd úr höllinni. Þetta var skemmtilegt kvöld en ég hefði viljað vera þarna. Við höfum séð þennan flutning áður, þannig að mér leið ekkert eins og ég væri að keppa í Eurovision í rauninni. Við erum bara að sitja á hóteli og horfa á Eurovision, en svo er fólkið sem er að keppa fyrir Ísland samt við.“

