Lögreglan á Egilsstöðum rak busa úr Selskógi í gærkvöldi vegna skotárásarinnar í Dalskógi en busavígsla hafði verið í gangi þar um kvöldið.
Líkt og gert hefur verið undanfarin ár, héldu nemendum og starfsfólk Menntaskólans á Egilsstöðum busavígslu í Selskógi í nágrenni Dalskógar þar sem maður skaut úr byssu í gærkvöldi. Lögreglan rak fólkið úr skóginum þegar skotárásin var í gangi.
Sjá einnig: Ástríðuglæpur á Egilsstöðum – Börn voru á staðnum þegar sjómaður var skotinn af lögreglu
Skotárásin á Egilsstöðum í gærkvöldi tengdist ástarmálum. Byssumaðurinn æddi inn á heimili fyrrverandi eiginmanns kærustu sinnar, vopnaður kröftugum loftriffli. Börn voru á heimilinu.
Lögreglan á Austurlandi skaut manninn við íbúðarhús á Egilsstöðum í gærkvöld. Maðurinn var fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur en ekki er vitað um líðan hans.
Mannlíf hefur heimildir fyrir því að byssumaðurinn á Egilsstöðum í gærkvöldi, hafi farið inn á heimili fyrrverandi eiginmanns kærustu sinnar, í þeim tilgangi að skjóta hann. Börn kærustu hans voru á heimilinu.
Rauði krossinn mun síðdegis veita íbúum Egilsstaða sálrænan stuðning og skyndihjálp eftir skotárásina. Þar var maður skotinn af lögreglu og liggur viðkomandi þungt haldinn á sjúkrahúsi. Maðurinn er sagður hafa skotið að lögreglubíl í gærkvöldi vopnaður haglabyssu.
Haldinn var fundur um atvikið með nemendum skólans í morgun en einnig var farið yfir viðbrögð skólans til hjálpar þeim nemendum sem eiga um sárt að binda vegna þessarar lífsreynslu. Aðspurður segir Árni Ólason, skólameistari Menntaskólans á Egilsstöðum að enginn hafi orðið vitni að atburðinum en að nýnemunum hafi verið brugðið og fengju viðeigandi aðstoð.
Sjá einnig: Áfallamiðstöð opnuð á Egilsstöðum eftir skotárás – Maðurinn liggur þungt haldinn
Maðurinn er rúmlega fertugur sjómaður og ekki þekktur fyrir ofbeldi. Hefur hann verið í ástarsambandi við kærustu sína í rúmt ár en heimildir Mannlífs herma að sambandið hafi verið nokkuð stormasamt og að lögreglan hafi verið kölluð á heimili þeirra fyrr í sumar. Maðurinn hefur í gegnum tíðina verið mikill áhugamaður um byssur og átt fjölmörg skotvopn.
Atvikið átti sér stað laust fyrir klukkan 11 í gærkvöld. Hafði lögreglan verið kölluð til eftir að skothvellir heyrðust í götunni. Samkvæmt heimildum Mannlífs, skiptist lögreglan á skotum við manninn eftir að hafa ítrekað skipað honum að leggja frá sér byssunni. Því hlýddi maðurinn ekki og því var hann skotinn. Stóð umsátursástand yfir í um hálftíma.
Maðurinn hafði gengið berserksgang í efstu götu Egilsstaða, Dalseli og skotið úr haglabyssu á nokkur hús í götunni. Íbúi eins hússins var staddur í bílskúrnum þegar hann heyrir hvelli fyrir utan og fór að athuga málið. Sá hann þá að búið var að sundurskjóta rúður í húsi hans. Lögreglan hafi beðið manninn um að leggja niður vopn sem hann varð ekki við og því hafi lögreglan skotið hann í kviðinn. Sá vitnið blóð leka niður götuna.

![skotaras_dalsel_egs_agust21_0026_web[1] skotárás](https://gamla.mannlif.is/wp-content/uploads/2021/08/skotaras_dalsel_egs_agust21_0026_web1-696x385.jpg)