Mánudagur 9. mars, 2026
3.8 C
Reykjavik

Brynjar Níelsson fékk æxli í lungað: „Lækna-Tómas hringdi í mig og vildi skera úr mér æxlið“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Brynjar Níelsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins og núverandi aðstoðamaður Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra, skrifaði færslu á Facebook vegg sínum í kvöld. Fer hann yfir árið sem hann segir hafa verið erfiðara en önnur ár í hans lífi.

Þó að málefnið sé alvarlegt, fjallar Brynjar um það með húmorinn að vopni líkt og hann er þekktur fyrir.

„Ég hef fengið leyfi frá Dómsmálaráðherra og Soffíu að senda ritskoðaða jóla- og nýárskveðju til fésbókarvina minna. Þetta ár hefur verið mér erfiðara en önnur í lífi mínu. Frá því snemma í haust hef ég verið mjög íþyngjandi fyrir heilbrigðiskerfið, sem ekki mátti við erfiðum sjúklingum í miðjum veirufaraldrinum.“

Segir Brynjar að árið hafi byrjaði á slæmu nýrnasteinakasti en þar með er ekki allt talið.

„Allt byrjaði þetta með heiftarlegu nýrnasteinakasti í miðri kosningarbaráttunnni, sem kallaði á endurteknar innlagnir á bráðamóttökuna. Þegar það var nokkurn veginn komið i lag varð mér á að fara léttslompaður á rafskútu. Afleiðingar urðu höfuðhögg og krambúleruð rifbein og það sem kringum þau er. Til að kóróna allt féll ég af þingi.

Mín fyrirsætustörf hafa einkum verið við röntgen-og sneiðmyndatökur síðasta misserið. Ég trúi þvi að almættið hafi sent mig á rafskútuna og sett í mig nýrnasteinana. Við þær myndatökur kom neðsti huti lungans inn á myndina. Fannst þar fyrir tilviljun æxli sem ekki er ætlað að vera þar. Eitthvað var óljóst hvers konar æxli þetta var og hefur verið flókið fyrir læknavísindin að finna út úr því. Voru læknar helst á því að þetta væri einhvers konar æxli sem fylgdi geðvonsku og leiðindum.“

Og þá kom kannski stærsta áfallið af öllu:

- Auglýsing -

„Ég var ekki fyrr kominn í dómsmálaráðuneytið, í óþökk margra, þegar Lækna-Tómas hringdi í mig og vildi skera úr mér æxlið og skipti engu hvort það væri góðkynja eða illkynja. Þótti líklegra að það væri illkynja vegna þess hvers konar maður ég væri. Tóku við frekari fyrirsætustörf og rannsóknir hvers konar. Hafði lækna-Tómas að orði að ég væri undurfagur að innan. Mátti helst skilja svo að hann hafi ekki séð fallegri lungu og hjarta. Svo fór að Lækna-Tómas skar hluta af lunganu úr mér nú á þriðjudaginn og kvaddi mig svo áðan með þeim orðum að æxlið hafi verið góðkynja að öllum líkindum enda þrífist ekkert illt inni í mér.“

Þá óskar Brynjar öllum gleðilegra jóla og þakkar Lækna-Tómasi og starfsmönnum Landspítalans fyrir vel unnin störf og að hafa þolað hann í allan þennan tíma.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -