Þriðjudagur 10. mars, 2026
3.6 C
Reykjavik

Bryndís ekki sátt við svar eiganda Curvy: „Mér finnst ömurlegt að Curvy skuli kalli mig lygara“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Mikla athygli vakti frétt Mannlífs um slæma upplifun Bryndísar Oddgeirsdóttur af versluninni Curvy.

Eigandi Curvy svaraði fyrir sig og verslunina eins og lesa má um hér.

Fríða Guðmundsdóttir eigandi Curvy

Bryndís er alls ekki sátt við svarið í áðurnefndri grein, og í samtali við Mannlíf sagði hún að „eins og ég segi þá hef ég alltaf fengið góða þjónustu hjá Curvy og bjóst við því að fá hana aftur núna; en þar sem þetta atvik kom upp um að niðurlægja kúnnana sína finnst mér ömurlegt að Curvy skuli kalli mig lygara.

 

Ég er með vitni að þessu atviki og ég veit ekki af hverju ég ætti að ljúga um svona hluti,“ sagði Bryndís og telur það deginum ljósara að málið sé alls ekki á neinum misskilningi byggt, og tekur aftur fram að „ég hef aldrei haft neitt á móti þessari verslun áður.“

- Auglýsing -

Bryndís segir Curvy ljúga, og vitnar í þessa setningu úr svargrein Curvy:

„Þetta er svo fjarlægt því sem við myndum nokkurn tíma segja við kúnnana okkar.“

Segir:

- Auglýsing -

„Þarna er beinlínis sagt að það sem ég lenti í, og hef vitni að þessu ömurlega atviki, sé uppspuni og bara lygi. Þetta gerðist, ég sagði satt og rétt frá og bakka ekkert með það.

Þetta er alls ekki byggt á neinum misskilningi, þetta gerðist raunverulega eins og ég sagði frá, það er staðreynd og ég bendi aftur á að vitni voru að þessu.“

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -