Eldur blossaði upp í lítilli íbúð í eldra vinnubúðarhúsi í dreifbýlinu rétt norðan við Stokkseyri.
Allt tiltækt lið frá Brunavörnum Árnessýslu á Selfossi var sent með hraði á vettvang ásamt tankbíl frá slökkvistöðinni í Hveragerði.
Mikill eldur var í húsinu þegar viðbragðsaðilar komu á staðinn og eldtungurnar stóðu út um glugga; hvasst var í veðri og reykurinn barst yfir í næstu hús og þurfti verja þau. Sem betur fer komst eldurinn komst ekki yfir í þessi hús.
Í það heila voru það yfir 20 slökkviliðsmenn sem voru kallaðir á vettvang; gekk slökkvistarf vel miðað við hvassviðrið.
Ekki er enn komið á hreint hvort húsið sem brann sé ónýtt en deginum ljósara að það er mikið skemmt, og nú rannsakar lögreglan á Suðurlandi rannsakar upptök eldsins, en mikil mildi var að húsið var mannlaust þegar eldurinn kom upp.

