Miðvikudagur 14. október, 2026
4.8 C
Reykjavik

Brot gegn sóttvarnalögum 312 talsins

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Samkvæmt málaskrá lögreglu hafa 312 brot gegn sóttvarnalögum verið skráð frá 1. mars í fyrra til 20. apríl síðastliðins.
Alls hafa 90 af þeim farið í sektarmeðferð. Af þeim eru 85 mál einstaklinga og fimm fyrirtækja. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu.

Hafa tæpar 4,4 milljónir króna verið greiddar í sektir við sóttvarnarbrotum frá upphafi faraldursins á Íslandi og til dagsins í dag og á sú upphæð enn eftir að hækka. En í vinnslu eða innheimtumeðferð eru sektir upp á tæpar 8,5 milljónir króna.

Hæsta hefur verið sektað fyrir 350 þúsund krónur, en algengasta sektarupphæðin er 50 þúsund krónur og næstalgengast er 100 þúsund eða 250 þúsund króna sektir.
Sektir sem felldar hafa verið niður nema 850 þúsund krónum. Alls hefur verið sektað fyrir rúmar 13,6 milljónir króna.

Þessar sektir hafa hlotist meðal annars vegna brota á reglum um sóttkví, einangrun er ekki sinnt þrátt fyrir að einstaklingur sé smitaður, brot á sóttvarnalögum, brot á reglum um fjöldasamkomur og brot á reglum um lokun samkomustaða.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -