Sigmundur Þór Árnason segir að bróður sinn hafi verið beittur ofbeldi á Kleppi. Þannig hafi bróðirinn sætt hörðum refsingum, sviptur allri afþreyingu og haldið í einangrun í lengri tíma.
„Mér finnst þetta grimmt, mjög grimmt,“ segir Sigmundur í samtali við Morgunblaðið. Bróðir hans er talinn ósakhæfur eftir að hafa orðið manni að bana og var í kjölfarið vistaður á réttargeðdeildinni á Kleppi. Bróðirinn var fyrir 20 árum síðan greindur með geðklofa.
Inni á Kleppi réðst bróðir Sigmundar á geðlækni og reyndi að kyrkja hann. Þá var hann kærður fyrir morðtilraun og í kjölfarið beittur hörðum refsingum að sögn Sigmundar.
Líkt og Mannlíf hefur greint frá eru fleiri dæmium að starfsfólki sem og sjúklingum á Kleppspítala, öryggis- og réttargeðdeildum Landspítalans, hafi verið beitt líkamlegu og andlegu ofbeldi. Auk þess hafa sjúklingar verið lokaðir inni á herbergjum sínum svo vikum og mánuðum skiptir, en þetta fullyrðir Gyða Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur. Hún er fyrrum starfsmaður á Kleppspítala og kveðst hafa séð þessa framkomu ítrekað að hálfu starfsfólks.
„Maður var vitni að ýmsu og svo fékk maður þetta frá starfsfólkinu. Það var ekki fylgt neinum reglum eða viðmiðum sem siðareglur hjúkrunarfræðinga vísa til,“ segir Gyða.
Sjá einnig: Lýsir ofbeldi starfsfólks á Kleppi: „Það var ekki fylgt neinum reglum eða viðmiðum“
Sigmundur segir að bróðir sinn hafi í fyrsta sinn náð smá bata er hann fór inn á réttargeðdeildina fyrir nokkrum árum og fékk lyf. Stuttu fyrir fyrrnefnda morðtilraun á Kleppi hafi bróðir hans hins vegar hætt að fá lyfin sín. Augljóst hafi verið að bróðir hans
væri í geðrofi og Sigmundur hafi varað starfsfólkið við.
Sigmundur segir það hreinlega ósanngjarnt að bróður sínum sé refsað vegna þess
sem hann telur vera mistök af hálfu Klepps. „Stofnunin sem hann er vistaður á vegna þess að hann er ósakhæfur kærir hann fyrir morðtilraun sem er vegna geðrofs sem þau framkalla,“ segir Sigmundur.
„Mér finnst það bara mjög grimmt.“

