Laugardagur 18. apríl, 2026
2.8 C
Reykjavik

Braut sóttkví á dópi á Ísafirði og nú eru þrír lögreglumenn frá störfum

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Lögreglan á Vestfjörðum greinir frá því á Facebook að ölvunarakstur varð til þess að þrír lögreglumenn þurftu að fara í úrvinnslusóttkví. Lögreglan þar hefur í nægu að snúast en hún rannsakar nú tvo brot á sóttvarnareglum.

„Meðal þeirra mála sem lögreglan á Vestfjörðum er að rannsaka þessa dagana eru tvö mál sem varða meint brot á sóttvarnareglum. Í öðru tilvikinu er um að ræða meint brot sem talið er að hafi átt sér stað um nýliðna helgi á vínveitingastað í umdæminu. Við eftirlit lögreglu þar kom í ljós að sóttvarnareglur voru ekki í heiðri hafðar, án þess að hin meintu brot verði tíunduð hér, enda málið til rannsóknar,“ segir lögreglan.

Svo er það öllu alvarlegra mál. „Í hinu tilvikinu er til rannsóknar meint brot manns sem ekki virðist hafa virt sóttvarnareglur er lúta að skimunarsóttkví. En maður þessi, sem var nýkominn til landsins, var stöðvaður af lögreglu við akstur bifreiðar á Ísafirði í síðustu viku, en hann er grunaður um að hafa verið undir áhrifum fíkniefna. Í fórum mannsins fundust nokkrar ætlaðar kannabisplöntur sem hann kannaðist við að eiga. Vegna þessara afskipta þurftu þrír lögreglumenn að fara í úrvinnslusóttkví í tvo sólarhringa

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -