Brotthvarf Sigmars Guðmundssonar fréttamanns frá Ríkisútvarpinu er enn eitt dæmi um að lykilmenn í fréttum og fréttaskýringum eru á flótta frá stofnunni. Þau örlög mæta honum að hann er kominn í framboð fyrir Viðreisn sem logar í illdeilum vegna Benedikts Jóhannessonar, fyrrverandi fjármálaráðherra, sem var smáður og hrakinn á brott við uppstillingu á lista flokksins. Meðferðin á Benedikt er augljóslega að undirlagi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur formanns sem er að tryggja stöðu sína sem leiðtogi Viðreisnar. Benedikt var hafnað í Suðvesturkjördæmi en honum bauðst en afþakkaði annað sætið á eftir Þorgerði Katrínu sem Sigmar hreppti. Það blasir aftur á móti við að flokkurinn logar í illdeilum og er á barmi klofnings. Eftir stendur að Ríkisútvarpið verður fyrir blóðtöku og þarf að sjá á eftir einum af sínum bestu mönnum og Benedikt er í fýlu utangarðs …
Blóðtaka vegna Sigmars

VefTv
- Auglýsing -
Hlaðvörp
- Auglýsing -
[facebook_large_like_btn]
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
Lestu meira
- Auglýsing -
Veistu meira um málið?
Endilega láttu heyra frá þér! Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.
Deila
Nýtt í dag
Mest lesið í vikunni
Í fréttum er þetta helst...
- Auglýsing -
