Laugardagur 7. mars, 2026
1.8 C
Reykjavik

Björn hjólar í Davíð Oddsson og Morgunblaðið: „Smásálir eru alltaf til sölu“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Grindvíkingurinn og samfélagsrýnirinn Björn Birgisson er orðlaus yfir himinháum launum ritstjóra Morgunblaðsins, sem hann kýs að kalla „löngu gjaldþrota fjölmiðil“ sem haldið er á floti með „betli frá hluthöfum“.

Nýlega fékkst uppgefið að Davíð Oddsson ritstjóri er með 5.5 milljónir á mánuði, af því líklega nærri 4 milljónir sem ritstjóri, og Haraldur Jóhannesen ritstjóri er með 3,2 milljónir. Samanlagt eru ritstjórarnir tveir því með yfir 7 milljónir í mánaðarlaun.

„og fyrir hvað?,“ spyr Björn furðu lostinn. „Að halda á floti löngu gjaldþrota fjölmiðli með betli frá hluthöfum og nú síðast með því að þiggja ölmusu frá ríkissjóði upp á um 100 milljónir – með von um annað eins bráðlega! Mikið skelfilega er þetta fáránlega aumt!“

Björn veltir þessu næst fyrir sér mikilvægi fjölmiðla sem fjórða vald samfélagsins og aðhaldi þeirra með upplýsingandi og afhjúpandi blaðamennsku til að koma upp um spillingu.

„Mogginn gerir það alls ekki! Saga blaðsins spannar á aðra öld og það hefur aldrei rannsakað nokkra spillingu – enda er það svo að eigendur og aðstandendur blaðsins væru þá sífellt til rannsóknar og hættu þá vitaskuld að ausa fé í kvalara sinn! Þeim finnst miklu betra að ausa fé í fjölmiðil sem tryggir þeim afskiptaleysið og þögnina!,“ segir Björn og bætir við.

„Til þess að þögnin ein ríki þarf að greiða vel fyrir þá þöggun. Hún kostar 7,1 milljón á mánuði. Það eru smáaurar hjá ríkasta fólki og fyrirtækjum landsins sem þannig tryggja sér jákvæða umfjöllum öllum stundum – hvað svo sem brallað er – löglega eða andstætt lögum. Smásálir eru alltaf til sölu.“

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -