- Auglýsing -
Björn Birgisson skýtur föstum skotum á Ingu Sæland og Birgisnefndina svokallaða vegna blessun þeirra sem þau muni leggja yfir kosningaúrslitin í Norðurvesturkjördæmi.
Pistill hans birtist inni á Facebook hópinn Sósíalistaflokkur Íslands. Segir hann meðal annars að þessi „hneisa“ muni verða Íslandi til háðungar um allan heim. Er pistillinn svohljóðandi:
„Þetta er að fara að raungerast!
Inga Sæland og fulltrúar stjórnarliða í Birgisnefndinni eru í þann mund að leggja formlega blessun sína yfir kosningaúrslit sem miklu fleira bendir til að séu fölsuð en að þau séu rétt!
Afskaplega vel rökstuddar grunsemdir beinast að því að Ingi Tryggvason sé sekur um að hafa átt við atkvæðin beinlínis í því skyni að fá fram breytt úrslit og þar með annað fólk á þing en fyrri talningin gerði ráð fyrir að þangað færi.
Þennan grun ætlar meirihluti Birgisnefndarinnar algjörlega að leiða hjá sér!
Hún og þingheimur munu komast upp með það að sinni.
Eða þar til dæmt hefur verið um lögmætið af erlendum hlutlausum dómstólum.
Þá mun þessi hneisa okkar unga lýðveldis verða okkur til háðungar um allan heim.
Pólitískir stundarhagsmunir ráða ferð í þessu máli núna.
Skömm þeirra sem þoka málinu áleiðis til þeirrar lausnar sem nú er að stefnt er slík að það fólk ætti tvímælalaust að svipta þingsætum sínum ef eitthvert réttlæti fær að vera til viðmiðunar.“

