Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra sagði í dag að „óásættanlegt er að heilbrigðiskerfið ráði ekki við fjórðu bylgju faraldursins, þrátt fyrir að flestir séu bólusettir,“ og bætir við að „aðgerðir síðustu mánaða til að efla kerfið virðist ekki hafa skilað tilætluðum árangri.
Bjarni virðist hreinlega skella allri skuldinni á stjórnendur Landspítalans og starfsfólki hans, og segir að engin þörf sé á aukafjárveitingum til spítalans, því að ríkisstjórnin hafa gert meira en nóg í þeim málum:
„Vandinn liggur annars staðar“ segir Bjarni og vill meina „að einstaka einingar í kerfinu virðast ekki vinna nógu vel saman og framleiðni hefur alls ekki aukist samhliða aukinni fjármögnun og betri mönnun.“
Bjarni grípur til sérkennilegs dæmis og segir að „ef einn vagn á lest er með bilaðan hjólabúnað getur hann dregið alla lestina niður í hraða, og þær aðgerðir sem heilbrigðisráðherra kynnti í dag, sem snúa að því að efla afkastagetu Landspítalans, hljóti að leysa þennan vanda að hluta.“
Að sögn Bjarna voru frekari sóttvarnatakmarkanir innanlands ekki ræddar á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun og alveg greinilegt á tali hans að honum finnst fjórða bylgja Covid 19 ekki hættuleg samfélaginu og í raun hættulaus fyrir langflesta Íslendinga.
Og Bjarna finnst það vera algjörlega „óásættanlegt að jafnlítið brot af heildarvandamálinu sem við vorum að horfast í augu við í upphafi, það sem snertir óbólusetta og mögulega viðkvæma hópa, sé að setja kerfið okkar nánast á hliðina; við skulum ræða það áður en við förum að setja kvaðir á alla Íslendinga að þeir geri meiriháttar ráðstafanir í sínu lífi; fólk sem yrði aldrei veikt eftir að hafa þegið bólusetningu.“
Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, segist koma af fjöllum þegar ummæli Bjarna voru borin undir hann:
„Ég veit hreinlega ekki hvað Bjarni á við; allar bráðadeildir eru með í kringum 100 prósent meðalnýtingu þrátt fyrir að alþjóðleg viðmið séu 85 prósenta nýting.“
Og bætir við:
„Við rekum spítalann fyrir miklu minni pening en tíðkast á sambærilegum sjúkrahúsum erlendis; þannig að ég veit hreinlega ekki hvað Bjarni á við.“
Páll nefnir að vissulega mætti alltaf gera betur, en það eigi ekki bara við um Landspítalann:
„Samhæfing í heilbrigðiskerfinu gæti alltaf batnað eins og allir aðrir hlutir í samfélaginu, og ég tel að samhæfingin hafi batnað; meðal annars með nýrri heilbrigðisstefnu sem sett var á laggirnar í tíð þessarar ríkisstjórnar. Reynslan af faraldrinum hefur orðið til þess að raðirnar hafa verið þéttar í heilbrigðiskerfinu enn frekar“ og segir Páll telja að „samstarf og flæði í því yrði mun betra þegar faraldrinum lyki.“
Páll nefnir að „aðgerðirnar til að létta álagi á sjúkrahúsið sem kynntar voru í dag eru mikilvægar til að efla spítalann og heilbrigðiskerfið, sérstaklega til lengri tíma. En meginaflið í að svara bylgjunni nú er þó starfsfólk Landspítalans sem vinnur dag og nótt og er undir gífurlegu álagi“

