Mikla athygli og mikla reiði vöktu orð Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra þegar hann gagnrýndi starfsemi heilbrigðiskerfisins; sagði óásættanlegt að kerfið réði ekki við yfirstandandi bylgju kórónuveirufaraldursins þótt langflestir séu bólusettir í bak og fyrir; þetta kom fram í viðtali RÚV við Bjarna fyrir fimm dögum síðan.
Bjarni tók skýrt fram að slæmt ástand á Landspítalanum væri ekki tilkomið vegna ónógra fjárveitinga til spítalans; virtist hann gagnrýna lélega vinnu stjórnenda spítalans og starfsfólk þess.
Fjölmiðlamaðurinn Björn Ingi Hrafnsson er á öðru máli hvað varðar túlkun á orðum Bjarna, en hann var gestur í hlaðvarpi Þjóðmála og ræddi málin við sjálfstæðismennina Gísla Frey Valdórsson og Stefán Einar Stefánsson.

Björn Ingi heldur því fram að þarna hafi Bjarni verið að gagnrýna Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra, en ekki stjórnendur og starfsfólk Landspítalans, eins og margir hafa haldið fram.
Það er mat Björns Inga að Bjarni „hafi verið að gagnrýna heilbrigðisráðherra; að mínu mati getur fjármálaráðherra ekki varpað ábyrgð á stjórnandur Landspítalans, því ef ríkisstjórnin telur stjórnanda ekki vera að standa sig í stykkinu þá skipta hún einfaldlega um stjórnanda. Það sem hann er að gagnrýna er heilbrigðisráðherrann í ríkisstjórninni sem hann situr í, Svandísi Svavarsdóttur.“
Björn Ingi nefndi að „í desember samþykkti fjármálaráðherra einn og hálfan milljarð til að leysa fráflæðisvanda spítalans; það voru einkaaðilar sem buðu fram þjónustu sína – Sóltún öldrunarheimilið; það var rætt um Hótel Sögu og Heilsuvernd bauð húsnæði í Urðarhvarfi; peningarnir voru til.“
Hann sagði einnig að „Landspítalinn var til í þetta vegna þess að það skiptir máli fyrir hann að geta tekið á móti nýjum sjúklingum. Starfsfólkið þar vill ekki vera í pattstöðu. Þarna er spurning um heilbrigða skynsemi en samt fást ekki svör og staðan er áfram þessi. Leigusalinn í Urðarhvarfi gafst upp á biðinni varðandi það úrræði sem Heilsuvernd ætlaði að bjóða.“
Þá sagði Björn Ingi einnig að „málið hafi ekki verið leyst vegna andstöðu í heilbrigðisráðuneytinu við að vinna með einkaaðilum af hvaða tagi sem er.
Og bætti við:
„Í heilbrigðisráðuneytinu er mikil andstaða við einkaframtak; hvort sem það eru frjáls félagasamtök eins og Krabbameinsfélagið eða SÁÁ, eða einkarekin fyrirtæki sem hafa starfað í áratugi; eins og Domus Medica og Læknasetrið; allt aðilar sem eru greinilega ekki æskilegir.“
Og þessi „ríkishugsun er að blinda mönnum sýn og það er þess vegna sem Bjarna rennur í skap núna; að Landspítalinn og heilbrigðisráðuneytið séu að bera fyrir sig fráflæðisvandann sem er ástæða þess að innlagnir eru að sliga spítalann, og þá er auðvitað ekki skrýtið að hann og fleiri ráðherrar í ríkisstjórninni segi, bíðum nú við, var ekki búið að leysa þetta? Eftir hverju var beðið?“
Bætti við að lokum:
„Ég held að það sé eitt af því sem á að rannsaka núna: Af hverju voru þeir fjármunir ekki nýttir sem voru settir í það sérstaklega að leysa fráflæðisvanda Landspítalans?“

