Listmálarinn umdeildi og athyglisverði, Þrándur Þórarinsson, opnar listsýningu á laugardaginn sem ber heitir „Gasalega lekkert“ – í Gallery Port á Laugavegi. Mörg málverka Þrándar hafi vakið mikla athygli í gegnum tíðina. Og nánast öruggt er að nú verði til sýnis myndir sem munu valda umtali og verða umdeildar.
Eitt þessara umræddu málverka er af sjálfum fjármálaráðherra Bjarna Ben, sem sýnir hann kyssa hringinn á hendi Þorsteini Má Baldvinssyni, oftast kenndur við Samherja.

Mörgum til væntanlegrar gleði þá er umrædd mynd til sölu og óskar listamaðurinn eftir tilboðum í hana.
Þrándur er einnig maðurinn á bakvið verk á borð við „Nábrókar-Bjarna“ og „Klausturfokk.“
En myndirnar segja miklu meira en þúsund orð. Njótið.



