Landsliðsmaðurinn Birkir Már Sævarsson, leikmaður Vals, tilkynnti í viðtali við RÚV eftir tap íslenska karlalandsliðsins gegn Makedóníu, 3-1, að hans ferli með landsliðinu væri lokið:
„Ég sagði Arnari Þór landsliðsþjálfara fyrir leikinn að þetta væri minn síðasti landsleikur. Þetta er búinn að vera skemmtilegur tími en nú er komið nóg,“ sagði Birkir Már sem væntanlega heldur þó áfram að leika með Valsmönnum.
Aðspurður sagði Birkir Már að stærsta stundin á hans langa og farsæla ferli með landsliðinu hafi verið sigurinn á Englendingum í 16 liða úrslitum EM 2016 í Frakklandi.
Birkir Már er einn af bestu knattspyrnumönnum sem Ísland hefur af sér alið; uppalinn Valsmaður sem á að baki frábæran feril hér heima, með landsliðinu og sem atvinnumaður erlendis.
Mannlíf þakkar Birki Má fyrir allar frábæru stundirnar sem hann hefur gefið íslenslu þjóðinni og hans verður sárt saknað í landsliðshópnum.
Takk Birkir Már.

