Birgitta nokkur spyr á meðan aðrir þegja. Eitt af því sem hún þurfti nauðsynlega svar við er hvers vegna dökki þvotturinn hennar lykti mun verra heldur en ólitaður þvottur sem kemur úr sömu þvottavél.
Til að fá svarið leitaði Birgitta til fjölmenns samfélags á Facebook, Þrifatips! Þar spyr hún:
„Af hverju kemur bara vond lykt af dökkum þvotti (fötum) hjá mér? Ég tek fötin úr um leið og þvottavélin stoppar, samt er einhver fúkkalykt af þeim. Þessi lykt finnst varla þegar fötin þorna en mér finnst samt eitthvað nasty við þetta. Ég hef viljandi látið annan þvott bíða í þvottavélinni í lengri tíma til að sjá hvort þetta gerist en það kemur engin lykt af því,“ segir Birgitta og heldur áfram:
„Ég hef prófað að setja stakar flíkur í rodalon og ég hef notað dettol efnið úr costco, matarsóda, edik og ég þvæ vélina reglulega og nota suðuþvott oft, nota aldrei mýkingarefni og hef prófað að hengja fötin út til þerris en það breytir engu..?“
Asni margir meðlimir hópsins viðast þekkja vandamálið og flestir þeirra benda á töflameðalið Rodalon, sem bæta eigi í vélina við og við. Hrafnhildur þekkir málið. „Kannast við svona. Einmitt mest af dökkum þvotti. Hef skutlað rodaloni í hann öðru hvoru of þá minnkar/lagast þetta,“ segir Hrafnhildur.
Ásrún er líka með ráð. „Þessi lykt er líklega úr vélinni. Sjóddu nokkrar vélar og þá ætti lyktin að hverfa. Sjóddu svo alltaf c.a. einu sinni í viku í vélinni og notaðu aldrei mýkingarefni,“ segir Ásrún.
Perla hefur einnig verið að glíma við vonda lykt úr lituðum þvotti. „Tengi en virðist samt bara koma af vissum flíkum úr sama efni og þegar þau eru hengd upp, þetta lagaðist hjá mér eftir að við fluttum og þvottarhúsið sem ég er með núna loftar betur og lyktin kemur ekki ef ég set flíkurnar í þurrkara á delicate þurrk. Einmitt bara svartur þvottur en gerðist aldrei með litaðann eða hvítan þvott,“ segir Perla.
Lísa hallast að því að vandinn tengist litarefni flíkanna. „Labbaði framhjá lyktandi rekka í New Yorker á dögunum. Það eru ónotuð og óþvegin föt! Eins hef ég heyrt að maður eigi aldrei að nota svarta sokka í ræktinni/íþróttum, því það komi mikið frekar táfýla í þá. Ég hef engar sannanir fyrir þessu og nenni ekki að gúggla þetta,“ segir Lísa.

