Forstjóri Play, Birgir Jónsson, segir að ekki sé verið að setja starfsfólki flugfélagsins neina afarkosti, og er hann er ósáttur við frétt mbl.is þar sem segir að starfsfólki flugfélagsins hafi verið boðin fastráðning í vetur gegn lækkun á starfshlutfalli.
Að sögn Birgis stakk starfsfólk félagsins upp á því að dreifa vaktaálagi í vetur til þess að sumarstarfsmenn, sem ættu að ljúka störfum í haust, gætu haldið áfram að starfa fyrir félagið þangað til að umsvif þess aukast aftur næsta vor með flugi til Bandaríkjanna:
„Þetta er ekki tilboð frá okkur eða afarkostir sem við setjum okkar starfsfólki. Þegar ég heyrði þetta i síðustu viku fannst mér þetta dæmi um góðan starfsanda og teymishugsun hjá okkar starfsfólki. Það eru engin frávik frá okkar plönum eða afarkostir eða tilboð frá okkur. Mikið af þessu starfsfólki getur boðið sig fram, eru í skóla eða með börn í skólum og þeirra aðstæður bjóða upp á það að lækka hlutfall sitt. Það yrði þá til þess að einhver annar starfsmaður myndi ekki bara hætta heldur fá vinnu í vetur.“

