Bifreið sem talið er að Almar Yngvi Garðarsson hafi verið á, fannst í kvöld í Hafnarfjarðarhöfn en lögreglan og slökkviliðið er á staðnum. Einnig er köfunardeild Landhelgisgæslunnar við störf í höfninni.
Vísir hefur eftir Skúla Jónssyni, aðstoðaryfirlögregluþjón hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, að staðfest sé að bíllinn sem fannst er sá hinn sami og leitað var að í tengslum við hvarf Almars.
Um níuleytið í kvöld staðfestu kafarar að bifreiðin væri grár Chevrolet Spark bílaleigubíll sem talið er að Almar hafi verið með á leigu. Ekki vildi Skúli veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu en áfram halda viðbragðsaðilar störfum sínum á vettvangi.
Síðan lýst var eftir Almari í gær hefur viðamikil leit staðið yfir að honum en þrjár björgunarsveitir hafa tekið þátt í leitinni ásamt lögreglunni og sjálfboðaliðum. Þá hefur þyrla Landhelgisgæslunnar einnig verið notuð í dag sem og drónar. Í samtali við fréttastofu Vísis um miðjan dag í dag, sagði Skúli fáar vísbendingar hafa komið fram í máli Almars og af þeim sökum hafi leitarsvæðið náð til Suðvesturhornsins, Suðurnesja og austur fyrir fjall.
Sjá einnig: Biðlað til sjálfboðaliða við leitina að Almari – Fólk beðið að skrá leitarsvæði sitt

