Fólk sem hefur verið á biðlista til að komast í endurhæfingu á Reykjalundi, dettur sjálfkrafa af listanum þegar ár er liðið af biðinni.
Mannlíf hefur undir höndum póst sem einstaklingur sem ekki vill láta nafns síns getið, fékk frá Reykjalundi. Einstaklingurinn hefur beðið í ár eftir endurhæfingu vegna bæði andlegra og líkamlegra veikinda. Í bréfinu sem Elínborg Bjarnadóttir, heilbrigðisgagnafræðingur skrifar undir, er viðtakandanum tilkynnt að vegna þess að ár er liðið síðan beiðni um endurhæfingu barst, sé hún tekin af biðlista.
„Þar sem beiðni þín um endurhæfingu á geðheilsusviði Reykjalundar er orðin meira en ársgömul er hún tekin af biðlista. Okkur þykir leitt að hafa ekki sinnt beiðninni. Ef enn er þörf á endurhæfingu þarf að koma ný beiðni. Virðingafyllst, Geðheilsusvið Reykjalundar.“

Mannlíf hringdi fyrir nokkru á Reykjalund og spurði út í málið.
„Já þetta er því miður svona, vegna Covid verðum við að gera þetta svona en okkur þykir þetta afar leitt,“ var svarið sem þaðan fékkst. Ljóst er að biðin eftir endurhæfingu á Reykjalundi hefur ekki minnkað og því er óvíst að fólk sem dottið hefur af biðlistanum komist nokkurn tíma að.

