- Auglýsing -
„Svona lýtur reikningurinn út sem vinkona mín fékk frá viðurkenndum aðilum“ segir Beta um handskrifað stílabókarblað sem má sjá á meðfylgjandi mynd. Beta setti innlegg inn á Facebook hópinn Vinna með litlum fyrirvara í von um ráðleggingar.

Beta segir að vinkona hennar hafi fengið mennina í verkið í janúar á þessu ári og þá sögðu þeir að þetta myndi taka tvær vikur. Baðherbergið se mer ekki nema 10 fermetrar var fokhelt á þessum tíma og vinkona Betu keypti salernið sjálf svo það er ekki inn í verðinu sem aðilarnir setja upp. „Þeir tóku að sér verkið í janúar og fékk þá píparinn 400 þúsund +38 þúsund“
Mynd af baðherberginu má sjá hér að neðan, en svona lítur það út í dag og verktakarnir biðja um meiri peninga að auki við þau 438.000 krónur sem vinkonan hefur nú þegar greitt þeim. „Núna 1 júlí er hún búin að marg marg biðja um kvittanir og löggilda nótu. Og núna svara þeir ekki!“ segir Beta að lokum og spyr, hvað vinkona sín eigi að gera í stöðunni.

Meðlimir hópsins létu auðvitað í sér heyra enda dæmið mjög vafasamt:
„Þetta er nú ekki löglegur reikningur“
„Ég held að það sé ekkert annað í stöðunni heldur en að ganga í krossinn eða vottana. Það er engin sem hjálpar í svona nema guð almáttugur. Eða, finna sér annan iðnaðarmann og borga ekki krónu meir. Það er samt kostur að þið vitið allavegana hvað tímin kostar. Ég fékk reikning frá stóru félagi sem birti bara samtölu fyrir vinnu, Ekki hvað tímin kostaði“
„Prenta út þær millifærslur sem hún hefur borgað og þau sms skilaboð sem þeirra for a milli . Kæra bara þetta mál strax. Þeir eru ekki að fara klára málið“
„99000. Fyrir flísalím , mörg bretti??“

