Þriðjudagur 10. mars, 2026
3.6 C
Reykjavik

Benni Bóas vill að Arnar Þór hætti: „Frábær á skrifstofunni en skelfilegur á hliðarlínunni“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Karlalandsliðið í knattspyrnu hefur lokið leik á þessu ári;liðinu gekk mjög illa í undankeppni HM; endaði í næstneðsta sæti riðil síns; vann aðeins Liechtenstein í þessum tíu leikjum.

Segja má að ákveðin bjartsýni hafi ríkt fyrir undankeppni HM þegar riðilinn fór af stað í mars og vísbendingar um að íslenska liðið gæti keppt um annað sæti riðilsins; aðeins Þjóðverjar áttu að vera óvinnandi vígi.

Allt fór hins vegar til fjandans; innan sem utan vallar:

„Þetta var ekki gott, það voru 500 vindstig í andlitið á þessu liði. Það gustað mikið, það hefur lítið verið rætt um fótboltann. Ein tölfræði vakti athygli sem er fjöldi leikmanna sem tóku þátt,“ sagði blaðamaðurinn Benedikt Bóas Hinriksson í sjónvarpsþætti á Hringbraut í gær.

Bætti við:

Arnar Þór Viðarsson.

„Ég hef verið á vagninum um að Arnar Þór Viðarsson sé ekki rétti maðurinn í starfið, ég er til í að gefa honum eina undankeppni. Ég vil losna við hann, hann er frábær á skrifstofunni en skelfilegur á hliðarlínunni,“ sagði gallharður Benedikt Bóas.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -