- Auglýsing -
Lögreglan á Vestfjörðum sendi nú fyrir stundu frá sér yfirlýsingu vegna hörmulegs slyss.
Yfirlýsing lögreglu:
Um kl.10:13 í morgun kom vegfarandi að bifreið sem hafði oltið út af Örlygshafnarvegi, skammt frá Látravatni. Ökumaður, sem var einsamall í bifreiðinni, reyndist látinn.
Svo virðist sem bifreiðin hafi runnið út af veginum og oltið a.m.k. eina veltu þar til hún staðnæmdist.
Lögregla, sjúkra- og slökkviliðsmenn frá Patreksfirði fóru á vettvang. Beita þurfti klippum og öðrum viðeigandi búnaði til að losa ökumann úr bílflakinu.
Tildrög slyssins eru til rannsóknar hjá lögreglunni á Vestfjörum en einnig er aðili frá rannsóknarnefnd samgönguslysa á vettvangi.
Fjölskyldu hins látna hefur verið tilkynnt um slysið.
Rannsókn stendur yfir og ekki tímabært að fjalla frekar um það að svo stöddu.

