Sunnudagur 8. mars, 2026
1.7 C
Reykjavik

Nylon stúlkurnar í borg englanna – Túruðu með Westlife og Girls Aloud

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Í baksýnisseglinum að þessu sinni er íslenska popphljómsveitin Nylon sem fékk síðar nafnið The Charlies.
Nylon var stofnuð árið 2004 eftir áheyrnarprufur sem Concert, fyrirtæki í eigu Einars Bárðasonar, stóð fyrir.

Margar efnilegar söngkonur tóku þátt en að lokum voru þrjár stúlkur valdar: Alma Guðmundsdóttir, Klara Ósk Elíasdóttir og Steinunn Þóra Camilla Sigurðardóttir, stuttu síðar bættist fjórða stúlkan við hópinn, Emilía Björg Óskarsdóttir.
Í október 2004 gaf Nylon út sína fyrstu breiðskífu sem bar nafnið 100% Nylon. Árið þar á eftir kom platan Góðir hlutir og að lokum Nylon árið 2006.
Nylon stimplaði sig ekki aðeins inn á Íslandi en fóru þær í tónleikaferðalag með heimsfrægu hljómsveitunum Westlife og Girls Aloud.
Sumarið 2007 sagði Emilía skilið við hljómsveitina, en létu Klara, Steinunn og Alma það ekki á sig fá. Þær gáfu út plötu sama ár og spiluðu víða utan landsteinanna, en sneru svo heim árið 2008.

Tveimur árum síðar, árið 2010 stofnuðu þær hljómsveitina The Charlies. Héldu stúlkurnar út til Los Angeles þar sem þær voru búsettar saman næstu fimm árin, allt þar til þær ákváðu að fara hver í sína áttina.

Þær sögðust enn vera miklar og góðar vinkonur þrátt fyrir þessa ákvörðun.

Hvar eru þær í dag?

Alma er enn búsett í Los Angeles þar sem hún hefur náð miklum árangri sem lagahöfundur á síðustu árum. Hefur hún meðal annars unnið með Alesso en lagið Remedy með sænska söngvaranum er samið af Ölmu.

Klara flutti heim til Íslands eftir ellefu ára dvöl í Los Angeles; hefur Klara einbeitt sér að sólóferli og gefið út fjölda laga sem slegið hafa í gegn; ber nýjasta lag Klöru nafnið Reykjavíkurnætur.

- Auglýsing -

Klara hefur þá skemmt gestum í veislusal Sjálands með Stefáni Hilmarssyni, í ljúfri jólastemningu síðustu vikur.

Steinunn rekur í dag umboðsskrifstofuna Iceland sync, sem vinnur að því að hjálpa íslensku tónlistarfólki með tengslanet utan landssteina, og hefur tekist einstaklega vel til.

Emilía er búsett á Íslandi og stofnaði hún söngskóla í Reykjanesbæ árið 2017.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -