Í baksýnisspeglinum í dag vörpum við ljósi á eina fegurstu konu heims, Lindu Pétursdóttur.
Linda fæddist á Húsavík þann 27. desember 1969. Ólst hún þar upp til tíu ára aldurs en flutti hún þá til Vopnafjarðar.

Linda var krýnd ungfrú Ísland í maí árið 1988, átján ára gömul. Þann 17. nóvember sama ár hreppti Linda svo titilinn ungfrú heimur og var krýnd í Royal Albert Hall í London við mikinn fögnuð viðstaddra.
Hafði Linda orð á því skömmu eftir sigurinn að hann hefði komið henni mikið á óvart og að tilfinningin við að heyra nafn sitt kallað hefði verið ólýsanleg.
Ef marka má umfjallanir erlendra miðla þetta árið er Linda sögð hafa fengið 30.000 pund í verðlaun. Þá fékk hún tækifæri til þess að ferðast um heiminn í eitt ár og fylgdu ótal önnur tækifæri í kjölfarið. Linda sat fyrir á ljósmyndum, opnaði sýningar og krýndi fegurðardrottningar.
Fjölmiðlar og tímarit dáðust að fallegum bláum augnlit fegurðardrottningarinnar en fegurð Lindu vakti athygli hvert sem hún fór og gerir enn.
Fegurðardrottningin hefur litið til baka og minnst dagsins er hún var krýnd ungfrú heimur. Þá segir hún daginn hafa breytt lífi sínu að eilífu. Hún fékk ekki aðeins boð í fyrirsætuverkefni heldur bárust henni boð um að leika í kvikmyndum sem hún afþakkaði. Leiklistin hafi ekki verið fyrir hana.
Eftir að Linda sagði skilið við fegurðarkeppnirnar sneri hún sér að heilsugeiranum sem á hug hennar og hjarta. Hún opnaði og rak Baðhúsið í yfir tuttugu ár og er reynslumeiri en flestir þegar kemur að heilbrigðum lífsstíl og hreyfingu.
Linda gaf út bókina Linda – ljós & skuggar með Reyni Traustasyni árið 2003 sem seldist vel og vakti mikla athygli.
Ungfrú heimur, Linda Pétursdóttir hefur glæstan feril í baksýnisspeglinum og ekki bara í fegurðarsamkeppnum.

