Laugardagur 17. október, 2026
9.8 C
Reykjavik

Bændur sáttir í sveitinni – Fáir vilja í borgina

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Fyr­ir áfram­hald­andi bú­setu skipta hreint loft, kyrrð og ró og lít­il um­ferð miklu máli. Þess­ir þætt­ir skipta mun fleiri miklu máli en ná­lægð við ætt­ingja eða vini, for­eldra eða tengda­for­eldra,“ seg­ir í um­fjöll­un um niður­stöður rannsókna Byggðastofnunar á búsetuaformum landsmanna.

Það er ljóst að fæstir stefna á mölina því 80% íbúa í sveit­um og strjál­býli lands­ins er frek­ar eða mjög ánægður með bú­setu sína og ætl­ar sér ekki að flytja þaðan á næstu árum. Bændur eru ólíklegastir allra til að flytja og rúmlega þriðjungur gerir ráð fyrir að fjölskyldumeðlur takið við búinu. Karlar er vilja frekar flytja en konur og Vestfirðingar frekar en aðrir landsmenn. Þeir eru ennfremur ósáttastir þegar kemur að viðhorfi til samgangna.

Flestir svara því til að nátt­úr­an og sam­fé­lagið í sveit­inni skipti sig per­sónu­lega miklu eða tals­verðu máli. Þá skipt­ir húsið sem fólk býr í einnig máli. Hreint loft vegur þyngst fyrir áframhaldandu búsetur svo og kyrr ðg ró, sem koma í annað sætið. 45% segja at­vinnu skipta miklu máli um þetta, 40% að jörðin fari ekki í eyði.

Langflestir, eða 60% telja fjár­hags­stöðu sína góða, eða tæp­lega 60%, en um 9% telja hana vera slæma. Það sem merkilegt er að þeir sem telja fjárhaginn góðan eða slæman eru sjá frekar fyrir sér flutning en þeir sem sjá hana þar í milli, hvorki góða né slæma.

Mikill munur er að svari eftir aldurshópum og er yngsti hópurinn líklegastur til flutninga. Þeir sem hyggjast flytja á annað borð kjósa helst að flytja innan sama landshluta en næstflestir á höfuðborg­ar­svæðið.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -