Þriðjudagur 10. mars, 2026
3.6 C
Reykjavik

Bæjarráð Árborgar: „Handtaka skal hænur tafarlaust og hanar bannaðir með öllu“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Bæjarráð Árborgar hefur úrskurðað um hænsnahald í þéttbýlinu og núna er leyfilegt að halda fimm hænur á hverri lóð, en stranglega bannað er að halda hana.

Þetta þýðir með öðrum orðum að lausaganga hænsna er með öllu óheimil í Árborg; sleppi hænsni úr gerði skal strax gera ráðstafanir við að handsama þau.

Þá kemur fram í úrskurði bæjarráðs að „komist hæna ekki í réttar hendur innan sjö daga er heimilt að ráðstafa henni til nýs eiganda eða selja fyrir áföllnum kostnaði. Ef það tekst ekki verða handsamaðar hænur aflífaðar.“

 

- Auglýsing -

Einnig að „á lóðum þar sem leyfi er til hænsnahalds þarf að vera að lágmarki 2,5 fermetra hænsnakofi með gerði; byggður samkvæmt byggingarreglugerð.

Til að koma í veg fyrir ónæði vegna hávaða þarf að „hafa myrkur hjá hænsnum frá klukkan níu á kvöldin til klukkan sjö næsta morgun alla daga.“

- Auglýsing -

Þá er ljóst að meirihlutinn í bæjarstjórn Árbæjar vill hafa hreinlætið í lagi og engin grið gefin hvað það varðar:

„Þá ber hænsnaeigendum að þrífa hænsnakofa að lágmarki einu sinni í viku og farga hænsnaskít á löglegan hátt.“

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -