Málefni KSÍ hafa hrist upp í íslensku þjóðinni að undanförnu, en segja má að ímynd „Gulldrengjanna“ okkar sem fóru á EM 2016 og HM 2018 sé ekki eins fögur og hún var.
En málefni KSÍ eru farin að teygja sig lengra út fyrir Laugardalinn og eru farin að fa áhrif á auglýsingamarkaðinn.
Stuðningsaðilar KSÍ eru nú orðnir verulega áhyggjufullir yfir stöðu mála og hefur til dæmis Vodafone og Vífilfell lýst yfir áhyggjum sínum.
Einnig Ölgerðin.

Nú hefur Ölgerðin tekið auglýsingu með meintum geranda úr landsliðinu úr birtingu, en það hefur Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar nú staðfest.
Hér er um að ræða auglýsingu fyrir Pepsi Max deildina og sýnir knattspyrnufólk undirbúa sig fyrir leik. Ábendingar hrönnuðust inn til Ölgerðarinnar um að meintur gerandi í hópnauðgunarmáli, sem er leikmaður í Pepsi Max-deildinni, kæmi fram í auglýsingunni og var því ákveðið að taka auglýsinguna úr birtingu á meðan málið væri til skoðunar.


