Miðvikudagur 14. október, 2026
4.8 C
Reykjavik

Áslaug leitaði í undirheimana og leiddist út í vændi: „Mér fannst heimurinn ógeðslegur“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Mér fannst ég þurfa að bjarga honum og bjarga fjölskyldunni en ég vissi í raun ekki neitt. Ég ætlaði alltaf að vera edrú, stoltið mitt var þannig, ætlaði að bjarga, taka utan um fjölskylduna mína og vera hetja en varð svo mjög veik í meðvirkni,“ segir Áslaug Júlíusdóttir, 28 ára, en hún í bata frá fíknisjúkdómi auk þess að vera aðstandi einstaklings með fíknisjúkdóm.

Hún er nýjasti viðmælandinn í hlaðvarpi Það er Von.

Kasólétt með glerflösku í hönd

Hún segir að lífið hafi breyst á unglingsaldri þegar eldri bróðir hennar byrjaði í neyslu og ræðir baráttuna sem fylgdi því að vera aðstandandi og vilja bjarga öllum, taka utan um foreldra sína og hjálpa bróður sínum út úr heimi fíkniefna.  Á þessum tíma var Áslaug aðeins unglingur og leitaði viðurkenningar hjá mönnum í undirheimunum. Hún rifjar upp atvik þar sem hún var 18 ára og kasólétt, með glerflösku í hönd til þess að bjarga stóra bróður sínum eftir að ráðist var á hann og hann hafði leitað til hennar um miðja nótt. „Ég fékk nóg, fannst heimurinn ógeðslegur, var ekki í neyslu en ruglið var samt nóg“.

Áslaug reyndi sjálfsvíg en eignaðist heilbrigt barn og tók sig á, eins og hún orðar það. Hún kláraði nám og var það hennar stol. Þegar hún var 26 ára flutti hún með son sinn til Flórída og fór í nám í félagsráðgjöf. Þar hófst hennar neyslusaga.

Í vændi og neyslu

- Auglýsing -

Námslánin dugðu ekki til að ná endum saman og svo fór að einn daginn for hún í sundlaugapartý þar sem maður gaf sig á tal við hana.

„Tveimur vikum seinna byrja ég að vinna sem „escort” og fer bara út í vændi og því fylgdi mikil neysla. Þó það væru flottir íþróttamenn, á snekkju eða geggjuðu húsi með Ferrari í bílskúrnum og mikla peninga þá er þetta viðbjóður, maður er að taka sálina sína.“

Áslaug segir frá því hvernig heimur vændiskonu var í hennar tilfelli var, hún var með dólg og lýsir því hvernig hún þurfti að senda skilaboð með kóða og var með lífverði. Í þeim heimi sem Áslaug lifði í flúði hún í hugbreytandi efni til að deyfa tilfinningarnar sem fylgdu vinnunni sem vændiskona. „Ég var að deita lögreglumann á þessum tíma og ætlunin var að komast út úr þessu. Ég mætti í skólann, sótti strákinn, fór á fótboltaæfingar og svo var ég hóra,“ segir Áslaug.

- Auglýsing -

Mótlæti og þolendaskömm

Einn daginn lenti Áslaug í miklu áfalli. „Ég var tekin af einhverjum og haldið í einhvern tíma, sprautuð, misnotuð og hent svo út á götu. Þar er ég handtekin og sett inn í fangelsi.“

Það tekur mjög á hana að segja frá þessu áfalli og því sem undan var gengið, eins og gefur að skilja. Áslaug segir frá því að eftir að heim til Íslands var komið hafi hún upplifað mikið mótlæti og þolendaskömm. „Á þessum tímapunkti hefði þurft að taka utan um mig í stað þess að dæma mig“.

Umræðan fer út í #metoo byltinguna og að hún hafi alltaf tekið ákvörðun í hvert skipti sem hún fór í vinnuna en hafi ekki gert sér neina grein fyrir því hvaða afleiðingar það myndi hafa. „Ástæðan fyrir því að ég er að segja söguna mína núna er að ég get séð, eins og Guð gerir, það er hægt að taka ösku og gera að gulli. Ég hef ekki svona mikla þjáningaþörf. Maður sér svo marga sem geta ekki haldið áfram og fyrirgefið sér.“

Draumur Áslaugar er að halda áfram að byggja upp fólk, gefa af sér og vinna í að minnka þolendaskömm.

Áslaug er frábær fyrirmynd sem segir hlutina eins og þeir eru, tjáir sig um Onlyfans og margt fleira í þessum magnaða þætti.

Þáttinn má hlusta á heild sinni hér.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -