Miðvikudagur 11. mars, 2026
0.8 C
Reykjavik

Áslaug Arna opinberar: „Telur ráðu­neytið rétt að rétta hlut yðar með því að biðjast af­sökunar“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Dómsmálaráðherra, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, hefur formlega beðið Björn Jón Bragason og Sigurð K. Kolbeinsson afsökunar.

Ástæðan er framganga ráðuneytisins gagnvart félögunum; fyrr á þessu ári komst um­­­boðs­mað­ur Al­þing­is að þeirri niðurstöðu að bréf sem Haraldur Johannessen, fyrrverandi rík­is­lög­regl­u­­stjóri hefði sent þeim félögum hefði stangast á við skyldur hans í embættinu. Auk þess hafi að­­gerð­ir dóms­­mál­a­ráð­u­neyt­is­ins í málinu verið ó­­við­un­and­i.

Málið nær fimm ár aftur í tímann; þá voru Björn Jón og Sigurður boðaðir á fund með einstaklingi sem sagðist vera fyrr­verandi rann­sóknar­lög­reglu­maður, en á fundinum áttu einnig að vera Haraldur ríkislögreglustjóri og Alda Hrönn Jóhannsdóttir fyrr­verandi sak­sóknari efnahagsbrota­deildar ríkis­lög­reglu­stjóra.

Umfjöllunarefni fundarins átti að snúa að umfjöllun Björns Jóns um fund sem haldinn var árið 2011, og varðaði fram­tíð efna­hags­brota­deildar ríkis­lög­reglu­stjóra. Sú umfjöllun birtist í bókinni Gjald­eyris­eftir­litið eftir Jón Björn sem kom út árið 2016.

Í áðurnefndri afsökunarbeiðni frá Áslaugu Örnu segir meðal annars að „í sam­ræmi við niður­stöðu um­boðs­manns Al­þingis og erindi yðar til ráðu­neytisins, telur ráðu­neytið rétt að rétta hlut yðar með því að biðjast af­sökunar á því hvernig til tókst varðandi bréfa­skriftir em­bættis ríkislögreglu­stjóra til yðar,“

- Auglýsing -

Samkvæmt heimildum Mannlífs er Björn Jón sáttur og málinu af hans hálfu því lokið.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -