Aktívistinn Ólöf Tara er þekkt fyrir ákveðni og að hika ekki við að láta það flakka sem hún vill að dregið sé inn í dagsljósið; baráttukona sem lætur engan bilbug á sér finna, hvorki nú né fyrr.
Hún birtir á Twitter athyglisverða færslu þar sem gamli fjölmiðlamaðurinn Ásgeir Kolbeinsson kemur við sögu.
Gefum Ólöfu Töru orðið:
„Ásgeir Kolbeins sagði mér að kellingar séu allar hrikalega horny í þynnkunni. Því er tilvalið að reyna að draga eitthvað drasl yfir. Á sunnudögum viltu ekki fá konu barna þinna yfir, þú vilt fá einhverja sem þarf ekki endilega að vera með 160 í greindarvísitölu.“
Fyrst var fjalllað um málið á vefsíðunni eirikurjonsson.is.

