Mánudagur 9. mars, 2026
3.8 C
Reykjavik

Árni segir Katrínu til syndanna: „Ríkisstjórn hennar hefur gleymt loforði sem hún gaf fötluðum“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Árni Múli Jónasson segir að „í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur segir: „Ísland á að vera land tækifæranna fyrir alla. Til að svo megi verða þarf að styrkja sérstaklega stöðu þeirra sem höllum fæti standa. Gerð verður úttekt á kjörum tekjulægstu hópanna í íslensku samfélagi, tillögur til úrbóta settar fram og þeim fylgt eftir.“ Ríkisstjórnin hefur algjörlega gleymt þessu loforði sem hún gaf fötluðu fólki þegar hún tók við völdum í okkar auðuga landi 30. nóvember 2017.“

Árni bætir við að „fatlað fólk, sem getur ekki eða fær ekki tækifæri til að afla sér tekna og verður að láta örorkubætur duga fyrir allri sinni framfærslu, er tvímælalaust tekjulægsti hópurinn í íslensku samfélagi. Mjög margt fatlað fólk þarf nú að láta um 300 þúsund krónur á mánuði duga fyrir allri sinni framfærslu; húsaleigu, mat, fötum, lyfjum, tryggingum, síma, interneti …“

Hann nefnir þó að „ríkisstjórnin hefur þó alls ekki gleymt öllum, eins og lesa má um í leiðara Kjarnans 24. ágúst, en þar kemur fram að þrátt fyrir að ríkisstjórnin hafi ausið fé úr ríkissjóði til að verja fyrirtæki fyrir áhrifum af heimsfaraldri kórónuveiru hafi forstjórar margra þeirra ekki beinlínis þurft að lepja dauðann úr skel. „Tíu tekjuhæstu forstjórarnir voru með samtals 176,9 milljónir króna í tekjur á mánuði árið 2020 og voru átta af þeim með yfir tólf milljónir krona. Tuttugu forstjórar voru með yfir sex milljónir króna“, segir í umfjöllun Kjarnans.“

Bætir við:

„Og þó að ráðherrarnir hafi gleymt fötluðu fólki og kjörum þessa tekjulægsta hóps í íslensku samfélagi hafa þeir munað bara býsna vel eftir sjálfum sér, eins og fram kemur í umfjöllun Kjarnans frá 9. Ágúst, en þar kemur þetta fram: „Grunnlaun ráðherra hafa hækkað enn meira í krónum talið. Þeir voru með 1.257.425 krónur í laun snemmsumars 2016 en fá nú 2.131.788 krónur á mánuði. Laun þeirra hafa því hækkað um 874.363 krónur á tímabilinu, eða um 70 prósent“ og biðlar til fólks sem „eitthvað verulega skakkt við þennan viðskilnað ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur“ hvetur það til að kynna sér málið vel áður en það greiðir VG sitt atkvæði í komandi kosningum.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -