Fimmtudagur 8. október, 2026
7.8 C
Reykjavik

Árni oddviti: „Bull að um nauðgun sé að ræða! Að hafa ekki áhuga þýðir ekki að þú viljir ekki“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Frétt Mannlífs um myndband sem Óskar Steinn Jónínuson Ómarsson gerði þar sem hann túlkar texta Ingós Veðurguðs við lag hans „Fanney“ hefur vakið gríðarlega athygli.

Í færslunni á Twitter-reikningi Óskars þar sem hann birtir myndbandið segir hann að „vísbendingarnar voru þarna í lögunum hans allan tímann… nei þýðir ekki „sannfærðu mig” btw“

Á Facebook-síðu Mannlífs þar sem fréttinni um myndband Óskars var deilt gerði Árni Hjörleifsson, sem er oddviti Skorradalshrepps og fyrrverandi bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins í Hafnarfirði um langt árabil – oft kallaður Árni Krati – athugasemd við fréttina sem fór ekki vel í marga.

Árni – sem er rafvirki að mennt – átti fyrstu athugasemdina um fréttina og var hún svohljóðandi:

„Hverslags bull er þetta, að um nauðgun sé að ræða, þó svo annar aðilinn, hafi ekki endilega einhvern sérstakan áhuga, er maðurinn ruglaður? Það að hafa ekki áhuga, þýðir ekki endilega að þú viljir ekki.“

- Auglýsing -

Eydís bregst við orðum Árna: „Siðferðiskennd sýnist mér að vanti stórlega í þennan mann.“

Og Sóley svarar líka oddvitanum Árna og segir að „þessi flotti strákur útskýrir þetta bara drullu vel og er hann þarna líka að tala um eitt lag sem Veðurguðinn samdi; ef þér finnst í lagi að stunda „kynlíf“ með manneskju sem hefur ekki áhuga þá ertu að nauðga henni; alveg sama hvað þér finnst! það er nauðgun.“

Inn á völlinn brýst þá Sighvatur Cassata með allnokkrum gauragangi og lætur þetta flakka:

- Auglýsing -

„Það er svo langt frá því að það heiti nauðgun…… Nauðgun er þegar annar aðiljin er tekin með VALDI……. Konur eiga það til að gera sig stórar með því að segja…. Ég Reið þessum og Þessum…… bara til að setja það í reynslubókina, ég hef heyrt fréttir af því….. og ekki bara fréttir heldur frá Fyrsta munni…..“

Segja má að Kristín taki undir með Árna og Sighvati með frekar sérkennilegri líkingu sem vægast sagt vakti litla kátínu í þræðinum, en hún segir að „sumir láta sig hafa það að fara til dæmis í matarboð, þó þeir hafi ekki áhuga á því.“

Óskar Steinn.

Marteinn er fljótur til svars og spyr Kristínu hvort hún sé að „líkja matarboði við nauðgun?“

Karen er ekki heldur hrifinn af „matarboðs“ líkingu Kristínar og kastar þessu fram: „Aahhh, já, alltaf þegar einhver sem ég hef ekki áhuga á að ríða, suðar í mér, þá hugsa ég alltaf.. Ææ, þetta er bara eins og að fara í matarboð“ og bætir við: „Nei, þetta er ekki einu sinni ögn sambærilegt!“

Ljóst er, og eðlilegt, að ekki eru allir sammála í umræðum um erfið samfélagsmál eins til dæmis mál Ingós Veðurguðs. En sé tekið mið af öllum þeim fjölda sem skrifar athugasemdir við fréttina um myndband Óskars þá er það þó deginum ljósara að þeir eru langtum fleiri sem taka undir með honum en ekki þegar Óskar spyr og svarar:

„Hvað heitir það þegar önnur manneskjan vill ekki ríða en hin manneskjan þrýstir á hana með skilaboðum um að þykjast vilja það!?“ – „Nauðgun, það heitir nauðgun.“

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -