Þriðjudagur 10. mars, 2026
3.6 C
Reykjavik

Árni: „Meirihlutinn metur störf starfsfólks í leikskólum mun minna en nágrannasveitarfélögin“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði metur virði starfa almenns starfsfólks í leikskólum minna en nágrannasveitarfélögin gera – svo munar tugum þúsunda á mánuði,“ segir Árni Rúnar Þorvaldsson varabæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði, og bætir við:

Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar.

„Fulltrúar þessara flokka í bæjarstjórn Hafnarfjarðar hafa ákveðið að þessi láglaunahópur sem sinnir afar mikilvægum störfum fyrir samfélagið og er að stórum hluta konur, skuli vera á lægri launum en kollegar þeirra í nágrannasveitarfélögum.“

Ágúst Bjarni Garðarsson er bæjarfulltrúi fyrir Framsókn og óháða í Hafnarfirði.

Árni Rúnir segir að „á síðasta bæjarstjórnarfundi, við síðari umræðu um fjárhagsáætlun næsta árs, höfnuðu fulltrúar Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks tillögu Samfylkingarinnar um að starfsfólkið fengi að nýju greitt fyrir að matast með nemendum. Þetta tíðkaðist hjá Hafnarfjarðarbæ en var afnumið sem ein af tímabundnum aðgerðum til að bregðast við afleiðingum efnahagshrunsins. Flestar þessara tímabundnu aðgerða hafa verið teknar til baka en ekki þessi.“

Leikskólinn Hlíðarberg í Hafnarfirði. Hafnarfjarðarbær greiðir almennu starfsfólki leikskóla bæjarins mun lægri laun en nágrannasveitarfélögin gera.

Hann færir í tal að „sjötíu prósent almenns starfsfólks leikskóla hafa íhugað að hætta“ og að „mönnunarvandi leikskólans hefur verið í brennidepli umræðunnar að undanförnu.“

Árni Rúnar segir að „samkvæmt könnun sem Verkalýðsfélagið Hlíf lét framkvæma meðal félagsfólks síns kemur fram að nær allt almennt starfsfólks á leikskólum bæjarins hefur fundið fyrir auknu álagi í starfi síðastliðna 6 mánuði.

Rúmlega helmingur þátttakenda segir það óalgengt að deild sé fullmönnuð og fjórir af hverjum tíu segja að deild hafi verið lokað á síðustu 6 mánuðum vegna manneklu. Það kemur því ekki á óvart að 70% almenns starfsfólks leikskólanna hafi íhugað að hætta í starfi.“

- Auglýsing -

Hann bendir á að í málefnasáttmála meirihlutans komi fram að leita eigi leiða til að minnka álag á starfsfólki skólanna:

„Erfitt er, miðað við þessar niðurstöður, að halda því fram að meirihlutanum hafi tekist að finna þær leiðir á kjörtímabilinu.“

Bætir við:

- Auglýsing -

„Með þessari nálgun er meirihlutinn ekki bara að bregðast þessum láglaunahópi heldur er hann líka að bregðast nemendum leikskólanna og foreldrum þeirra – leikskólasamfélaginu.“

Rósa og Ágúst Bjarni vilja greiða almennu starfsfólki leikskóla Hafnarfjarðar mun lægri laun en nágrannasveitarfélögin gera.

Segir að meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar „horfist ekki í augu við raunveruleikann og tekur ekki á mönnunarvandanum; og þegar saman fer aukið álag og óhagstæður samanburður á kjörum við nágrannasveitarfélögin er augljós hætta á því að mönnunarvandinn haldi áfram að aukast með verulegum óþægindum fyrir leikskólasamfélagið í heild sinni.“

Árni Rúnir telur að „almennt starfsfólk leikskólanna á betra skilið frá meirihluta bæjarstjórnar Hafnarfjarðar og störf þeirra eiga ekki að vera minna metin en sambærileg störf í nágrannasveitarfélögunum.“

Og bætir við að lokum:

„Því miður ákvað meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks að nýta ekki tækifærið á síðasta bæjarstjórnarfundi með því að samþykkja tillögu Samfylkingarinnar. Meirihlutinn kastaði því frá sér möguleikanum á að leiðrétta kjör þessa hóps og jafna þann mun sem er kjörum almenns starfsfólks í leikskólum í Hafnarfirði og nágrannasveitarfélögum. Það verður því verkefni nýs meirihluta á næsta kjörtímabili að leiðrétta þessa skekkju.“

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -