Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari Þýskalands í handknattleik og goðsögn á Íslandi var nýlega í einlægu viðtali í hlaðvarpsþætti Snorra Björnssonar, The Snorri Björnsson Podcast Show. Þar opnaði hann sig um fráfall eiginkonu sinnar, Köru Guðrúnar Melsteð sem lést í lok maí eftir erfiða baráttu við krabbamein. Vísir greindi fyrst frá.
Þau hjónin kynntust ung og höfðu verið gift í rúm fjörutíu ár þegar hún lést. Í viðtalinu segir hann að hann hafi ekki aðeins misst eiginkonu sína heldur besta vin sinn.
„Það er kannski erfitt að segja hvenær við byrjuðum saman. Við vorum búin að þekkjast frá því við vorum fimmtán ára og byrjuðum saman sautján, átján ára. Hún var ekki bara konan mín heldur besti vinur minn og harðasti gagnrýnandi minn. Hún er stórkostlegasta manneskja sem ég hef kynnst,“ segir Alfreð í viðtalinu.
Sýn Alfreðs á lífið breyttist við fráfall Köru og segist hann hafa lært heilmikið af henni.
„Hún er heilsteyptasta manneskja sem ég hef kynnst. Í fyrsta lagi berst maður við reiðina yfir þessari ósanngirni. Ef einhver hefði ekki átt að lenda í þessu var það hún. Af þessu lærir maður að allt hitt skiptir engu máli. Hvað er mikilvægt við handboltaleik eða smá áhyggjur af einhverju þegar maður upplifir svona,“ segir hann og bætti svo við að hann sæi eftir mörgu, meðal annars að hann hefði kannski átt að hætta 10 árum fyrr.
„Við ætluðum að fara að lifa lífinu og hafa það eins og við vildum. Akkúrat þegar við ætluðum að fara að njóta vinnu okkar fer þetta í hina áttina. Maður lærir hvað fjölskyldan, vinirnir og dagurinn í dag skiptir miklu máli. Og líka að í öllum þessum erfiðleikum voru ofboðslega falleg og skemmtileg augnablik á hverjum degi.“
Hér má sjá viðtalið í heild sinni:

